Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

sunnudagur, október 31, 2004

Skóli

Ég held að næsta vika verði mjög erfið.
Í fyrsta lagi vegna þess að við vitum ekkert hvort verkfallið skelli á aftur eða hvað. 9.nóv kemur það í ljós. Semsagt næsta þriðjudag. Ég ætla bara að halda mínu striki í kennslunni. Ætla ekki að skipuleggja neitt fram í tímann og ekki fara út í nein stór verkefni.
Í öðru lagi verður allt í háalofti í umræðum um samningana. ÚFF ég segi nú ekki annað.

Ég er spennt að sjá hvort þetta verður samþykkt eða ekki. Það er mikill hiti í fólki en svo er spurning hvort fólk kjósi nei þegar á hólminn er komið.

Peningaleg staða hjá kennurum (a.m.k mér) er orðin frekar slöpp og það er freistandi að horfa á 130.000 kr. eingreiðslu 15.nóv og svo laun fljótlega eftir að búið er að samþykkja. EN ... maður verður víst að hugsa til framtíðar.

En nóg um þetta.

Fórum í Kringluna áðan og keyptum kuldaskó á krakkana. N.B. það er komið jólaskraut!!!!
Í dag eru bara 53 dagar til jóla sem er náttúrulega ekki neitt :-)

Bæjó



fimmtudagur, október 28, 2004

Hætt að telja

dagana.... Ég held að 6.vikunni sé bráðum að ljúka.
Ég er orðin leið og löt.
Er samt búin að vera dugleg að mæta í WC. Svo reyni ég að finna mér eitthvað til dundurs. Viðraði t.d. sængurnar í dag eftir að vera búin að horfa á þátt með Opruh í morgun (í WC á hlaupabrettinu) um hreinlæti á heimilum. Þar var farið í heimsókn til konu sem var lítið fyrir að henda dóti sem var ekki orðið handónýtt. Hún var með 30 ára gamlan kodda. Ój.... eldgamlan þvottasvamp ofl. Eftir að tekin höfðu verið sýni hér og þar í íbúðinni hennar kom í ljós að það voru fleiri bakteríur í kringum vaskinn en í klósettinu!!! Jakk....
Einhver sérfræðingur sagði að það ætti að skipta um á rúmunum einu sinni í viku. Mér finnst það nú fulloft. En allaveganna ég dreif mig að henda sængunum út á svalir þegar ég kom heim.

Fyrir þá sem ekki vita: Jólaskrautið er komið upp í Kringlunni. 8 vikur í jól það má ekki seinna vænna.

Er loksins búin að ákveða að geyma London ferðina mína. Ég get ekki verið að fara út á kredit. Samt langar mig svooooo. Ef verkfallið leysist á næstu klukkutímum skipti ég kannski um skoðun :-)

Jæja, farin að sofa í ný viðruðu sænginni minni. I love it!!!





fimmtudagur, október 21, 2004

5. vikunni að ljúka

Ég er búin að vera svo upptekin í verkfallinu að ég hef bara alveg gleymt að blogga. Neinei, bara grín.
Á morgun er verkfallið búið að vera í 5 vikur og lausn er ekki í sjónmáli. Þetta er orðið mjög pólitískt mál því ríkið bendir á sveitafélögin og sveitafélögin á ríkið. Enginn vill axla sína ábyrgð. Mín skoðun er sú að ríkið verði að koma inn í þessa deilu því annars leysist þetta ekki.
Svo hefur heyrst að það sem launanefndin sé að bjóða komi að fullu til framkvæmda árið 2008. Eftir 4 ár á ég að vera búin að fá það sem þetta langa verkfall skilar mér. Held nú ekki.
Eftir því sem verkfallið dregst því meiri baráttuhugur kemur í kennara. Við gefumst ekki upp!
Svona er staðan semsagt.

Ég er búin að vera að dúlla mér í ýmsu. Fór í Fellaskóla í gær á verkfallsvakt. Vel tekið á móti okkur þar.
Svo skrapp ég í Smáralindina að kaupa ekki neitt nema belti börnin. Ótrúlegt hvað maður sér mikið sem mann langar í og "vantar" þegar maður á ekki pening. Svo langar mig ótrúlega mikið til London í húsmæðraorlof til Bettýar vinkonu minnar.
Kannski ég skelli mér bara. Algjört kæruleysi.

Farin að athuga Flugleiðir





þriðjudagur, október 12, 2004

Bubbi byggir eða hvað...

Ég ætlaði að vera svo dugleg í dag. Mér datt í hug að bæsa/mála hillur í barnaherberginu. Þetta eru bara svona venjulegar IKEA hillur ómeðhöndlaðar. Keypti blátt bæs og skellti mér í þetta. Fór í málningagallann, setti blöð á gólfið og byrjaði....

ÓMG hvað þetta er ljótt!!!! Get varla lýst því. Eftir því sem ég málaði meira og sá hvað þetta er ljótt sannfærði ég mig um að þetta eru ómögulegar hillur, allt of djúpar, taka allt of mikið pláss og vægast sagt óhentugar.

Ég hætti í miðju kafi og ákvað að kaupa nýjar hillur þegar ég fæ borgaða verkfallsaurana á föstudaginn. Jess nú hef ég eitthvað að gera á morgun við að kíkja í Ikea og fleiri húsgagnabúðir.

Keypti gardínuefni í barnaherbergið í dag. Það var nú ekki stór fjárfesting 1800 kall og svo var ég búin að kaupa stöng á nokkra hundraðkalla.

Kveðja, málarameistarinn NOT

22.dagur

Jújú, ég kann alveg að telja, málið er bara að á heimasíðunni www.kennarar.is eru 22 dagar búnir í verkfallinu og ég taldi alltaf bara kennsludagana. Hef 22 daga því það hljómar verr.

Ég var einhvern veginn svo viss um að það yrði samið um helgina. Var meira að segja búin að fá eitt stresskast í gær yfir því að þurfa kannski að fara að vinna í dag(ég hefði þurft að undirbúa mig í gærkvöldi), en nei.... næsti fundur á miðvikudag.

Djö.... er þetta orðið þreytandi. Ég viðurkenni það alveg: Ég sakna vinnunnar minnar.

Ég fór í dag í verkfallskaffi hjá samkennurum mínum. Það eru flestir frekar daprir yfir þessu.
Afrekaði að fara og skoða barnagardínur, fara í leikfimi og borða hádegismat hjá múttu. Fleira varð mér nú ekki úr verki í dag fyrir utan þetta hefðbundna.

Heyrði í morgun að Christopher Reeve er dáinn. Superman sjálfur. Skammaðist mín smá fyrir Superman brandarana sem ég er búin að hlæja af í gegnum tíðina (serstaklega hjólastóladjókið).

Verkfallskveðja,






fimmtudagur, október 07, 2004

14.dagur

Þetta er hætt að vera sniðugt. Nú er ég algjörlega búin að fá nóg.

Afrekaði það í dag að fara með bílinn í smurningu, æfa í Laugum, fara og kaupa ómögulega lúffur sem ég þarf að skila á morgun, baka nokkur bananabrauð í frystinn. Já þetta var bara nokkuð gott hjá mér.

Meira á morgun,



miðvikudagur, október 06, 2004

Þrettán

Þrettándi verkfallsdagurinn.

Minn skóli átti kaffivaktina í morgun þannig að ég þurfti að mæta með veitingar. Ég ætlaði alls ekki að stoppa svona lengi en ég var þarna í 3 tíma!!! Spjalli spjall... svo kom Eiríkur og fór yfir stöðu mála sem er vægast sagt ekki sérlega upplífgandi. Ég mæti ekki í vinnuna þessa vikuna.

Annars er ekkert sérstakt nýtt.

Ég er mjög glöð að sjá það að það eru einhverjir að lesa bullið í mér. Er það ekki einmitt tilgangurinn með svona síðu, maður vonar innst inni að einhver nenni að fylgjast með.

Ég kíki alltaf reglulega á þessar:
bocaraton.blogspot.com (Essý og co)
nannar.blogspot.com (Nanna Rögnvalds. Matargúru en ég þekki hana ekki neitt)
fyrrverandifeitabolla.blogspot.com (Þekki þessa heldur ekkert en mér finnst athyglisvert þetta low-carbo fæði sem hún er á)
Svo er ein sem skrifar svo fyndnar frásagnir (þekki hana heldur ekkert). www.toothsmith.blogspot.com

Fór á mjög nytsamlegt námskeið í gærkvöldi. Lærði að gera fastar fléttur!!! Ég kunni þetta svosem en þetta var alltaf svo klúðurslegt hjá mér. E fór með mjög glæsilegar fléttur í leikskólann í morgun. Mömmur þurfa nú að kunna svona.

ER í kvöld... júhúú og footballers wifes...

Kveðja,


mánudagur, október 04, 2004

Mánudagur til mæðu

Halló!
11 dagur verkfalls.

Fór í morgun í verkfallskaffi til samkennara míns.
Ég keyrði sem leið lá Sæbrautína því ég ætlaði að taka bensín hjá ECO. Nema hvað ég keyri á dekkjardrasl á miðri götunni. Ég sá þetta ekki fyrr en allt of seint því bíllinn á undan mér skutlaði þessu til mín. (Alltaf gott að kenna öðrum um). Ég fór og tók bensín og kíkti á skemmdirnar. Sprunga í stuðaranum og horfið ljós (þokuljós??). Ég fór til baka með fína myndavélasímann minn til að taka mynd af stóra steininum... en þá sá ég að þetta var dekk. Hvaða maður lendir í því að það hvellspringur dekk og skilur svo tægjurnar eftir???

Þetta er ekki búið enn.
Einum og hálfum tíma seinna var á leiðinni heim. Beið róleg á Eiríksgötunni. Búmm.... lítill sendiferðabíll lenti aftan á mér. Djö..... Mér sýnist ekkert sjást á bílnum en læt bóndann kíkja betur á þetta þegar hann kemur heim.Höggið var þónokkuð. Fékk símann hjá manninum og tók niður bílnúmerið.
B var með mér í bílnum og ég held því miður að hann hafi lært ýmis ljót orð í dag af mömmu sinni. Ég ætla ekki að blóta næst þegar ég lendi í einhverju.

Það er varla að ég þori að fara út aftur í dag. Meiri dagurinn ég segi nú ekki annað.

Kveðja, Hrakfallábálkurinn.

P.S. Ég fór á alveg frábæra leikskýningu í gærkvöldi. Rómeó og Júlíu. Ég var búin að heyra að það væri gaman en ég bjóst ekki við svona showi. Það var meiriháttar gaman.

sunnudagur, október 03, 2004

Sunnudagur

Tvær vikur búnar. Núna er staðan þannig að deiluaðilar tala saman sem hlýtur að vera góðs viti.
Ég reikna samt ekki með að það verði samið 1,2 og 10. Þetta tekur smá tíma.
Leikskólinn er lokaðuður á morgun og þrið. sem hentar mér vel því ég þarf ekki að taka mér frí til þess að vera heima.

Verkfallið mætti alveg leysast bráðum því þá hef ég efni á að fara í húsmæðraskemmtiferð með Öllu til London að heimsækja 3. meðlim "The mingling klæk". Við ætlum að skella okkur í byrjun nóv. þ.e.a.s EF verkfallið leysist bráðum. Vá hvað það væri nú gaman!

Ég var alveg í kasti á föstudaginn: Bakaði bananabrauð og kanilsnúða í frystinn. Nú á ég bara eftir að steikja kjötbollur í frystinn. Kannski geri ég það á morgun eða hinn. Það er svo þægilegt að eiga svona tilbúið.

Í kvöld fer ég á Rómeó og Júlíu í Borgarleikhúsinu. Ég var svo heppin að fá miða því þetta eru örfáar aukasýningar. Fer með Ingu.

Bæjó,