Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

laugardagur, mars 26, 2005

London London.. Páskar

Mikið svakalega er páskafrí góð uppfinning. Ef þetta er ekki besta fríið þá veit ég ekki hvað. Allir í rólegheitunum að dúlla sér með fjölskyldunni - kvalití tími.
Húsmóðirin er komin heim aftur frá London. Í stuttu máli sagt: Það var BARA gaman :-) Við vinkonurnar höfðum það æðislega fínt. Versluðum "aðeins" (smá afsökun... ég var að kaupa á 4 og meira að segja smá til heimiilins. Mæli eindregið með www.bluewater.co.uk.
Fórum túristarúnt í downtown London, út að borða á pöbb,ítalskan, indverskan og mexikanskan veitingastað. Ekki má gleyma skólaheimsókninni. Það var mjög athyglisvert og við vorum sammála um að það vantar aga í íslenska skóla. Bresku krakkarnir voru svo stillt og prúð að við fengum smá sjokk.

Lærði nýtt orð í dag: Bjánahroll (sjá dálkinn aftan á Fréttablaðinu í dag). "Bjánahrollur er þegar ákveðin lúmsk,klígjuleg tilfinning - alls ekki óþægileg - hríslast niðuir bakið, eftir mænunni, í kjölfar þess að maður verður vitni að einhverju bjánalegu. .... Umræddur viðburður eða háttalag þarf að vera einhvern veginn allt í senn hallærislegur, púkalegur og bjánalegur og þarf að vera til vitnis um það að eitthvað hafi átt sér stað sem er einhvern veginn plebbalega út úr takti við allt annað og svo klúðurslega yfir strikið og neyðarlegt að maður fær semsagt líkamleg áhrif, sem lýsa sér í umræddum hrolli eða kipp".

Ég held að ég hefi fengið mesta bjánahroll ever þegar Fischer kom til landsins og útsýniningar Rúv og stöðvar 2 voru rofnar vegna þessa merkilega atburðar. Það mætti halda að það hefði hafist gos í Esjunni.

Gleðilega páska,

laugardagur, mars 12, 2005

Skyr, jógúrt ofl.

Jæja, ein í kotinu með börnunum. Bóndinn á tölvusýningu í Hannover. www.cebit.de
Það er nú ekki eins hrikalega erfitt að vera ein með börnin núna. Þetta er bara ekkert mál!
Svo fer nú að styttast í mitt "orlof". Bara 5 dagar þangað til! Jei....

Ég er búin að taka þátt í verðstríðinu mikla sem er búið að standa síðustu viku. Fór í Bónus á fimmtudaginn, keypti helling af skyri, skyr.is, cereousi, jógúrti, vínberjum ofl. Fyllti 3 poka fyrir utan morgunkornið. Allt þetta kostaði 2500 kall! Svona á þetta að vera.
Ég horfði á sumar konur vera með heilu körfurnar af "verðstríðsvörum" og það lá við slagsmálum út af tveimur tveggja lítra kók flöskum. En það sem ég var að spá er hvaða pláss heufr venjulegt fólk (ja, eða venjulegir ísskápar) fyrir allt þetta? Þó þetta hafi verið næstum því gefins keypti ég bara það sem ég sé fram á að verði borðað, og n.b. það er pláss í ísskápnum mínum fyrir ýmislegt annað.


Adíos amígos....
Bónusgellan

laugardagur, mars 05, 2005

Áfram

Ég sé að það eru a.m.k tveir sem skoða bloggið mitt. Tveir sem þora að viðurkenna það. Ég held því ótrauð áfram.

Lenti í svaka púli á fimmtudaginn. Fékk það staðfest að ég er rosalega sterk með gott úthald. Bar 8 pakka af parketi, 1 flísapakka, 3 rúllur af undirlagi upp á 3. hæð. Hver parketpakki var 24 kg. Með í burðinum voru Eiginmaðurinn, mágurinn og systir. Ég gaf sko karlmönnunum ekkert eftir og var mjöööög ánægð með sjálfa mig á eftir. Fékk pínu strengi í handleggina og einn marblett á hægri mjöðm. Púlið í WC er greinilega að borga sig. N.B. var búin að taka þríhöfðann og brjóstvöðvana á miðvikudaginn. Monti monti monti.
Hringið bara í mig þegar ykkur vantar aðstoð við flutningar, biðjið mig fyrst!

12 dagar í London ferðina :-) Jibbíííí.