Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

miðvikudagur, júní 29, 2005

Le Bon, Duran Duran....John Taylor.... ofl.

Ég fékk nettan bjánahroll í dag þegar ég hlustaði á beina útsendingu þegar Duran Duran mættu á klakann. Ef einhver hefði sagt mér fyrir 20 árum að ég ætti eftir að fara á tónleika með DD hefði ég gjörsamlega misst mig. Þetta er svo fáránlegt eitthvað. Fara og hlusta á eldgömlu átrúnaðargoðin spila lög sem ég og Maja vinkona sungum í míkrófón sem pabbi hennar átti fyrir löööööngu síðan. Ég ætlaði að giftast John Taylor... bara formsatriði að ná í hann. Maja átti bútaplakatið úr Bravó blöðunum, ógeðslega flott. Í réttri stærð. Spáið í því!!!!
Verð að viðurkenna að ég hlakka bara til.

Wild boys.... save a prayer.... ordinary world.... hungry like a wolf.... my name is Rio....

Júbííííí......

P.S. Hvernig ætli U2 innleggið mitt verði???? Verð að fara að skrifa uppkastið því nú fer að styttast í aðaltónleikana :-)

föstudagur, júní 24, 2005

Önnur vika..

í sumarfríinu er að klárast. Ég get svarið það hvað tíminn líður hratt. Ég er nú búin að hafa nóg fyrir stafni: T.d. fara 3x út að borða í hádeginu, fara í WC, útrétta fult, slappa af. Ég er ekki einu sinni búin að hafa tíma til að taka skápana í gegn eins og ég geri venjulega í upphafi sumars. Kemst ekki í það á mánudaginn því þá fer ég til tannsa. Semsagt nóg að gera :-)

Við skötuhjúin fórum í Jónsmessuhlaupið í gærkvöldi. Fórum heila 3 km, en ég sá svo eftir því að hafa ekki farið 5 því ég hefði sko alveg getað það. En það var bara gaman að vera með. Vorum svo fljót að við vorum fyrst í heita pottinn eftir hlaupið.
Annars varðandi afrek mín á hlaupanámskeiðinu eru alveg þokkaleg. Ég geri það sem mér er sagt að gera og lifi það alveg af (get hlaupið 5km án þess að deyja). Markmiðið mitt er ennþá að hlaupa 10km á innan við klukkutíma. Það eru ennþá 2 mánuðir til stefnu þannig að ég hef nægan tíma til bæta mig!

Letikveðjur....

laugardagur, júní 18, 2005

Laugardagur

Hæ hó jibbí jei... í gær var 17.júní. Ég man bara ekki eftir öðru eins veðri, hægt að vera á stuttermabol og það var heitt! Ég man frekar eftir öllum skiptunum þegar við krakkarnir vorum klædd í sokkabuxur og þykkar peysur undir sumarjakkana. Við erum svo glötuð að við nenntum ekki í neinn troðning þannig að við löbbuðum Laugaveginn, sáum fornbílana keyra niður, sáum Kalla á þakinu á Arnarhóli og fórum svo i kaffi til langömmu. Krakkarnir voru alsæl. (sem er auðvitað aðalatriðið).

Ég var ein heima í gærkvöldi sem var kannski bara eins gott því ég horfði á svo frábæra mynd: The notebook. Ég hef lesið bókina 2x en þrátt fyrir það grét ég úr mér augun yfir myndinni. Hún er svo falleg. *Grát* Mæli með henni.

fimmtudagur, júní 16, 2005

Ups.. I did again

Ég trúi því varla hvað ég er heppin :-) Það liggur við að ég þurfi reglulega að klípa mig í handlegginn til þess að athuga hvort þetta sé draumur. Ég er komin í sumarfrííííííí!!!
Nú verð ég eins og fín frú að dúlla mér næstu vikurnar ein, því krakkarnir verða áfram á leikskólanum þangað til við förum saman í frí fjölskyldan. Ég kannski sæki þau snemma einhverja daga en annars ætla ég bara að halda rútínunni.

Ég mætti aftur í hlaupahópinn. Mér gekk mun betur að hlaupa síðast. Svo fór ég að hlaupa í morgun því ég kemst ekki í kvöld. Ekkert mál. Kannski ég geti æft mig nóg svo ég geti hlaupið 10km. Það er allaveganna markmiðið. Ég er í svaka æfingagír núna. Go go go...

föstudagur, júní 10, 2005

Gat það

Mér tókst þetta :-)
Hljóp 5 km og var ekki síðust.. hehe... Ég fór í miðhópinn því ég tel mig í þokkalegu formi, er að æfa en hef kannski ekki hlaupið svo mikið úti.
Anyway... þetta var helv.. erfitt en sem betur fer lá leiðin niður á við síðasta spölinn. Ég var ferlega stolt af sjálfri mér að hafa gert þetta. Hugsa að ég mæti aftur á þriðjudaginn og býst meira að segja við því að ég fari eftir hlaupaáætluninni sem kemur í pósti til mín á morgun.
Góða nótt,

fimmtudagur, júní 09, 2005

Sjúddírarírei

I'm so glad..... Nú á ég ekki svo mikið eftir. Morgundagurinn verður tekinn í tiltekt í skólanum. Tek Bólu-Hjálmar hjálparhelluna með mér. Vonandi næ ég að klára allt á morgun.

Ég er búin að gera það ótrúlega: Búin að skrá mig í hlaupahóp sem æfir fyrir 10 km hlaup í Reykjavíkurmaraþoninum. Mæting 2x í viku og svo þarf auðvitað aðeins að mæta fyrir utan það. Vonandi get ég þetta :-/ Fyrsti tíminn minn er á eftir. Ef ég skrifa ekki á morgun hef ég ofreynt mig í Laugardalnum.

Kveðja, Hlaupakellan

sunnudagur, júní 05, 2005

Það er að koma sumarfrí

Ég hélt svei mér þá að sumarfríið hefði hætt við að koma. Eftir gríðalega törn í vinnunni er ég farin að sjá fyrir endann á þessu. Bara næsta vika eftir og þá ætti ég að vera komin í frí :-)
Að vísu er B kominn með hlaupabólu þannig að hún gæti aðeins seinað fríinu en það er nú allt í lagi. Síðustu dagana er bara tiltekt og þh.
Meira síðar.