Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

mánudagur, nóvember 29, 2004

Fyrsti í aðventu

Jæja, fyrsti í aðventu. 26 dagar til jóla.
Við fórum í Garðheima til þess að kaupa eitthvað smotterí í aðventuskálina mína. Það voru svona 1000 aðrir sem voru í sömu erindagjörðum. Ég sá það að það er auðvelt að tapa sér í jólaundirbúningnum. Það er svo mikið til af alls konar fallegu jóladóti. Svo kom jólablað Moggans í gær með skrilljón uppskriftum. EN.. ég ætla ekki að falla fyrir þessu.

Ég ætla ekki að þrífa alla skápa og glugga (tók nokkra skápa í verkfallinu).
Ég ætla ekki að baka 10 smákökusortir ( bara piparkökur og lionbar kökur)
Ég ætla ekki að kaupa machintosh (las um daginn að það seljast 88 TONN í desember - ój)
Ég ætla ekki að borða yfir mig.
Bara njóta þess að slappa af og vera með fjölskyldunni :-)

Þá er það opinbert: Ég er góður hlaupari. Ég fór í mjólkursýrutest og það kom í ljós að ég er barasta í fínu formi. Til þess að ná góðri fitubrennslu þarf ég að breyta prógramminu mínu aðeins.
Ég á að geta hlaupið í 60-90 mín án þess að "drepast". Hlakka til að prófa þetta.

Kveðja, The running woman.



föstudagur, nóvember 26, 2004

Þolinmæði á þrotum

Þolinmæði mín gagnavart nýju prentsmiðju Morgunblaðsins er á þrotum. Enn einu sinni kemur blaðið allt of seint. Í dag eða réttara sagt kvöld var örugglega sett nýtt met. Mogginn var að detta inn hjá mér klukkan 21.45. Það eru ekki nema 9 tímar í það að ég vonast til að fá blaðið á morgun. Það er eins gott að ég fá send spil eða handklæði um jólin sem þakklæti fyrir þolinmæðina (eins og það gerist).
Ég ætla ekki að nöldra meira.

Ég fór í centrum síðustu helgi til að athuga með eitthvað við fína jólahlaðborðspilsið en ég fann ekkert nema dragt við það. Já, ég mátaði fyrst jakka úr sama efni og hann smellpassaði mér og þá varð ég bara að máta buxurnar við og þær pössuðu mér jafn vel. Ég gat náttúrulega ekki sleppt þessu einstaka tækifæri enda er ég búin að vera með augun opin fyrir dragt nokkuð lengi.
Ég ætla að vígja dressið á laugardaginn á jólahlaðborði VISA. Ég afboðaði mig á hlaðborð skólnas annað kvöld. Þessi vika er búin að vera ansi þétt skipuð og ég ákvað að ég nenni ekki að fara nema á eitt hlaðborð.

Jæja, ég ætla rétt að líta á Moggann og fara svo og hátta. Ég ætla að reyna að druslast í leikfimi í fyrramálið. Það er búið að vera óvenjulega erfitt að vakna eftir verkfallið.


föstudagur, nóvember 19, 2004

Föstudagur

Jæja, kominn föstudagur - loksins.

Þetta er búin að vera skrítin vika. Fyrst var ég niðurbrotin og þreytt á þessu öllu saman. Svo er bara allt í einu búið að semja. Mér sýnist samningurinn vera svona lala. Þetta er aðeins skárra en mt. Aðeins búið að bæta ágúst hækkunina. Ég á eftir að skoða launatöflurnar betur og sjá hvernig þetta kemur nákvæmlega út fyrir mig.

Það var bara gaman að kenna í gær og í dag :-) Nú er ég komin í gírinn. En ég viðurkenni alveg að það er gott að fá helgina.

Ég fór í gær og keypti mér pils. Mér leið eins og ég veit ekki hvað í mátunarklefanum í fínu company versluninni. Ég var í svörtum nikesokkum, með vænana marblett á öðru hnénu og eitthvað hefur nú liturinn frá því í sumar verið fljótur að hverfa af fótunum.Ég er viss um að ég verð rosa pæja þegar ég verð komin í SVARTAR sokkabuxur.
Þetta er semsagt jólahlaðborðspils. Ég er að fara á 2 hlaðborð næstu helgi. Nú "vantar" mig kannski eitthvað flott við.

Idol kveðjur,

mánudagur, nóvember 15, 2004

Orðlaus

Ég er aldrei þessu vant orðlaus.
Ég get ekki líst með orðum hvernig mér líður. Ég er algjörlega andlaus og andlega þreytt.
Ég hefði ekki trúað því að verkfall hefði svona áhrif á mann.

Skólastarf á morgun... hm... hm... reikna samt frekar með því að ég mæti frekar en hitt.

Ég ætla að föndra í kvöld og athuga hvort ég hressist ekki smá við það.

Kveðja, kennarinn með litlu kái í dag.

sunnudagur, nóvember 14, 2004

Ég nenni ekki að tjá mig um lögin sem voru sett á kennarana.

Ég er bara svo drullufúl yfir því að vera búin að vera í verkfalli í 7 vikur og eigi að mæta á mánudaginn eins og ekkert hafi í skorist. Engin launahækkun fyrr en á næsta ári. Ekkert reynt að bæta okkur þetta verkfall upp.
Við skulum sjá hvernig þetta verður á morgun í skólum landsins, ég er allaveganna ekkert að undirbúa mig í dag.

Uppgötvun dagsins: Í einni mandarínu eru 9 bátar.

Bless kex klukkan sex.. .ég held að ég sé orðin biluð

föstudagur, nóvember 12, 2004

Allt brjálað

Lagasetning á kennaraverkfall. Gerðadómur settur 15.des EF ekki verður búið að semja þá... Döh... eins og það gerist núna en ekki síðustu 8 vikurnar. Gerðadómur hefur nógan tíma því launin verða gerð upp 30.apríl og launahækkun reiknast frá 15.des...
Við sem erum búin að vera samningslaus síðan 31.mars.
Ég veit hreinlega ekki hvernig þetta allt saman fer.

Kannski ég sæki um fluffudjobbið sem var verið að auglýsa. Þarf að sækja um í síðasta lagi fyrir 14.nóv. Hef ég ekki alveg útlitið í það??? (ekki svara mér). Ég er viss um að það er betur borgað.

Ég er búin að reikna það út að það eru 5 kennsluvikur í jólafrí. Þetta er skrítin önn. Mér hefur alltaf fundist haustönnin svo lengi að líða en vorönnin fljót. En núna er tíminn búinn að æða áfram í verkfallinu. Það verður bara þægilegt eftir jól :-)

Góða helgi

fimmtudagur, nóvember 11, 2004

Miðvikudagur

Dagur 2 í seinna verkfalli.
Nú er bara allt að verða vitlaust. Forsætisráðherra er búinn að kalla saman deiluaðila á morgun. Hann getur ekki reddað þessu einn þannig að hann fær Dabba vin sin sem btw er orðinn utanríkisráðherra með sér á fundinn. Væri ekki nær að hafa menntamálaráðherra með á fundinum? Mér finnst þetta bara fyndið!
Nú hlýtur eitthvað að fara að gerast. Lög og málið sett í gerðardóm eða kjaradóm eða eitthvað álíka.

Ég fór í dag og pantaði mér gardínur í stofuna. Efni, braut og saumaskap. Ég ákvað bara að gera þetta almennilega. Fæ þetta eftir 3 vikur... jibbííí hvað verður fínt hjá okkur :-)
Það er eins gott að verkfallið verði leyst þegar ég þarf að borga þetta.

Meira á morgun.

þriðjudagur, nóvember 09, 2004

Verkfall

Þá er verkfallið skollið á aftur. Ég veit ekki alveg hvort ég á að segja fyrsti í verkfalli eða hvað? Eða kannski bara seinna verkfall??
Guð hvað ég var fegin að heyra að tillagan var felld með 93%. Þetta sýnir bara algjöra samstöðu meðal kennara. Þetta eru svo mikilvægir samningar og við látum ekki bjóða okkur eitthvað bull.
Ég vona bara að þetta verði nú ekki allt of langt í viðbót.

Annars er svosem ekkert títt. Við fjölskyldan fórum í fína sumarbústaðaferð um helgina. Alltaf gott að fara í bústað.

Ég er búin að jafna mig í handleggnum.

Sá á www.mbl.is að Nasi fyrrverandi kunningi minn fékk 2 og 1/2 ár líkfundarmálinu. Sagan hans þótti með ólíkindum (hehe). Hver trúir því að einhver maður geti keyrt 700 km leið með rotnandi lík aftur í og ekki taka eftir því??

Bless í bili,

föstudagur, nóvember 05, 2004

Ái..

Ég er að farast í vinstri handlegg. Ég er svo aum að ég get varla lyft handleggnum upp. Ég sé ekki fram á að ég geti legið á vinstri hliðinni í nótt.
Skýring: Ég var bólusett fyrir influenzu í morgun. Hvað leggur maður ekki á sig til þess að geta hjúkrað manni og börnum?

Ég hef verið alveg þokkalega heppin hvað varðar veikindi. Ég hef ekki orðið alvarlega veik í mörg ár. Hef fengið 1-2 kvef á ári og fékk gubbupest í fyrra. 7-9-13 bank bank.

Kennarar bíða eftir mánudeginum. Það verður fróðlegt að sjá hvað þessi miðlunartillaga verður felld með miklum mun.
ÚFF þetta verður hrikalegt. Vonandi verður samið fljótt eða bara sett lög á okkur. Það var nefninlega alveg ágætt að byrja aftur. Krakkarnir svo ánægð að koma aftur og til í að læra.

Jæja, farin í háttinn....

Góða nótt