Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

laugardagur, desember 31, 2005

Tvöþúsundogsex

Gleðilegt ár!!!
Takk fyrir það gamla :-)
Megi nýja árið færa ykkur gleði og hamingju.
Skrifa meira síðar.

mánudagur, desember 12, 2005

Frostrósir

Fór á meiriháttar tónleika í gærkvöldi; jólatónleika Frostrósa. Æðislegur söngur, falleg lög og ef maður kemst ekki í jólaskap eftir svona tónleika þá er viðkomandi algjört steinahjarta.
Bakaði piparkökur í dag með familíunni, keyptum jólatré í gær (höfum aldrei verið svona snemma í því) þannig að þetta er allt að koma hjá okkur. Reikna með því að skrautið komi upp úr kjallaranum næstu helgi.
Þetta verður frekar annasöm vika en ég stefni að því að skrifa jólakortin í vikunni.

Kv. Stekkjastaura (er það ekki kvenkyns útgáfan af Stekkjastaur?)

miðvikudagur, desember 07, 2005

Orðaleikir

Ég á á á Á.
Ég c q í á.

Þetta er í Skruddu I

Svona orðaleikir eru alltaf svo skemmtilegir :-)

sunnudagur, desember 04, 2005

Hrærivél

Ég var svo upptekin af því að monta mig af snilligáfu minni í gátulausnum að ég gleymdi því sem ég ætlaði upphaflega að blogga.

Í dag varð ég loksins fullgild húsmóðir. Elsku besta mamma mín gaf mér Kitchen aid hrærivél. Hún fór með okkur systurnar í Byko að fjárfesta í gripunum. Við tókum extra rúnt í versluninni með vélarnar í körfunni ef ske kynni að við myndum hitta einhverja sem við þekkjum (til þess að sýna hvað við erum heppnar).

Vélin sómir sér vel í eldhúsinu og ég hlakka til að vígja hana.

Nú á ég Kithchen aid hrærivél og blandara, auðvitað í sama lit. Nú vantar mig bara brauðristina en hún kostar bara 19.000 kall staðgreitt. Nei, nei bara að grínast. 2000 króna brauðristin okkar er ennþá í lagi og ristar brauðið okkar alveg ágætlega. Ætli Kitchen aid brauðristin risti brauðið betur?

Kveðja, Húsmóðirin með stóru H-i.

Gátusnilli

Ég er búin að gera merkilega uppgötvun: Ég er gátusjúk. Ég er sjúk í krossgátu Moggans á sunnudögum, mér finnst skemmtilegt að leysa sudoku og svo er ég búin að uppgötva eina nýja bókmenntagátu. Og viti menn..... ég er nýbúin að leysa eina :-)