Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

föstudagur, nóvember 16, 2007

M&M

Andinn heltist yfir mig "uforvarende" sem þýðir bara eitt: Skella einu bloggi inn.

Það helsta í fréttum er að ég er búin að borða "nokkur" M&M. Ef það er eitthvað sem ég stendst ekki er það ofangreint sælgæti. Ég ákvað að fá mér fyrst 10 stk, svo sótti ég mér 10 í viðbót sem áttu að vera það allra síðasta. Í þriðju ferðinni eftir næstu allra allra síðustu 10 sykkin ákvað ég að hætta að blekkja sjálfa mig og kláraði pokann. Það var ekki svo mikið eftir, kannski 30(enn í afneitun).
Mér finnst ég líka eiga svo bágt í kvöld því ég er komin með einhverja pest. Skildi ekkert í því í vinnunni í dag hvað ég var að finna til í mjöðmunum, öðrum fótleggnum, olnboganum og fleira. Kom heim og tók til íþróttadótið mitt en fannst ég eitthvað óvanalega þreytt. Mældi mig og var komin með hita :-( Ég fæ svo sjaldan hita að ég þekki varla einkennin lengur.
Engin BC æfing í dag. Vonandi sef ég þetta úr mér.
Svo er ég búin að vera grasekkja í 4 daga sem þýðir að ég á ennþá meira skilið þetta M&M sem ég er búin að gæða mér á (enn meiri afneitun).

Það er eins gott að ég sofi þetta úr mér svo ég komist á útiæfinguna á laugardaginn.

Svo var ég að skrá mig í BC til 23.des. Ég get bara ekki hætt strax.

Lifið heil, löggst í sófan.
Good night.

2 Comments:

  • At 3:39 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Hæ Greta mín,
    ég er að fylgjast með þér- svona öðru hvoru.
    Ég skil þetta með M&M-ið, það hverfur alltaf þegar maður opnar pokann. Ég held að það gufi bara upp svona eins og vatn. Heill poki hverfur á einu kvöldi :)
    knús frá Ingu

     
  • At 10:43 e.h., Blogger Ég sjálf said…

    Hehe.. ég sendi svo Sverri sms um að það væri búið og að hann ætti EKKI að kaupa annað. Hann misskildi það eitthvao og keypti nýjan.
    Hann er ennþá óopnaður.

     

Skrifa ummæli

<< Home