Jólin eru að koma :-)
Afsakaðu allan þenna reyk inni,ég var bara að líta til með steikinnihún er meir og mjúkalveg eins og hugur manns.Við hjónin erum búin að æfa þetta lag og getum tekið það hvar sem er (helst eftir tvö rauðvínsglös). Baggalútur er bara snilld. Ekki hægt annað en að komast í jólastuð við að hlusta á þá.Eftir allar hremmingarnar (sprungið snjóbræðslurör og vatn úr helv.. dælunni undan vaskinum í kjallaranum yfir allt nýlagða parekttið - allt of löng saga, verðið bara að hringja í mig til þess að fá "full version" ) síðustu daga erum við að verða tilbúin fyrir jólin. Vorum að langt fram eftir kvöldi við að koma lagi á fataherbergið Jebb ég á fataherbergi eins og í bíómyndunum en það er vegna þess að það eru engir skápar í húsinu.Dagurinn í dag verður notaður í ýmsar útréttingar. Fara í Bónus, fara í kirkjugarðinn, setja upp jólatréð, skreyta pínu meira, ofl. ofl.Við eigum eftir að hlusta á Þorláksmessulagið svona 10 sinnum dag :-)Hafið það gott.
5 dagar
Bara 5 dagar til jóla. Þrátt fyrir fögur fyrirheit er ég ekki búin að kaupa allar jólagjafirnar (vantar 4). Ég er heldur ekki búin að búa til jólaísinn en ég er búin að kaupa allan rjómann sem fer í hann. Ég er langt komin með jólakortin.Er þetta ekki bara allt í lagi.Byrja í jólafríi á morgun eftir hádegi þannig að þá hef ég nægan tíma til að dúlla mér að kaupa afganginn.Skyrgámur fékk heldur betur góðar móttökur þegar hann kom til að setja í skóna í nótt. Fékk skyr frá Elísu (skyr.is með perubragði, kom ekki annað til greina) og skilaboð frá syninum. Hann langar svo mikið í eitthvað pödduslím (mjög jólalegt en hann er allur í slímum; prumpslími, pödduslími og ég veit ekki hvað). Ætli bjúgnakrækir verði ekki að fara í Kringluna á eftir og finna þetta pödduslím?Njótið síðustu dagana fyrir jólafrí :-)
Stúfur
Stúfur kemur í nótt :-) Mikið er þetta nú skemmtilegt hlutverk sem foreldrar hafa. Ég er alveg viss um að foreldrar hafa fundið upp þetta gefa í skó dæmi. Þvílíkt tak sem þessir jólasveinar hafa á börnunum.Pirr dagsins: Einhver jólasveinn keyrði á bílinn fyrir utan World class í Laugum í hádeginu á mánudag. Sá hinn sami er ekki enn búinn að hafa samband (sénsinn). Hvaða fífl gerir þetta? Þetta er ekkert lítil beygla! Samkvæmt mínum útreikningum hlýtur þetta að hafa verið jeppi. Bara fúlt.Stefni að því að vera búin að öllu jólastússi næstu helgi. Ætla meira að segja að skella í jólaísinn, klára jólakort og allt það. Svo er bara að njóta lífsins.Þetta verður væntanlega síðasta almennilega jólafríið mitt í langan tíma. Jebb, mín bara að fara að breyta til.Jólasveinakveðja :-)
Magapest..
Úff dagur 4 í veikindum. Ég hef ekki orðið svona veik í háa herrans tíð. Ég var svo "þreytt" á laugardaginn að ég var með beinverki. Hehehe.. ákvað ekki að mæla mig fyrr en á laugardagskvöldið og var þá komin með háan hita. Fatturinn dálítið langur.Anyway.. ég er búin að vera með magapest frá helvíti og háan hita með. Gríðarlega skemmtilegt eða þannig. Ótrúlegt hvað orkan er fljót að fara þegar mataræðið er sama og ekki neitt. Er alveg eftir mig þegar ég labba milli hæða.Vonandi er þetta að verða búið.Í dag eru bara 19 dagar til jóla. Ég sé ekki fram á að:
Föndra fyrir jólin - aldrei þessu vantBaka 7 sortirGera konfektGera heimatilbúin jólakortKaupa kertin í aðventukransinn minn fyrr en næstu helgiGet þó státað mig af því að hafa sett upp pakkadagatal fyrir krakkana í fyrsta skipti.Ég saumaði það út þegar ég var í barneignafríi (fyrir óralöngu síðan) og gleymi því aldrei hversu mikil vinna fór í það.En mikið svakalega eru krakkarnir ánægðir með þetta! Finnst þetta allt svo spennandi :-)Í staðinn:
Fá allir keypt jólakort,verða bakaðar piparkökur þegar húsmóðirin kemst á lappirLion bar kökurnar verða líka bakaðar,Konfektið verður keyptEiginmaðurinn er búinn að hengja upp seríur á húsiðHann er líka að mála í kjallaranum og ætlar svo að parketleggja vinninginn minn (sjá færslu á undan)Bless í bili,Farin að slappa af :-)