Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

þriðjudagur, janúar 29, 2008

Úti er alltaf að snjóa...

trallalalla...

Ég mætt með fögur fyrirheit og ég veit ekki hvað.

Það helsta sem á daga mína hefur drifið síðan síðast er í stuttu máli:

- Varð eign þvottahúsa ríkisspítalanna í sólarhring. því ég fór í hálskirtlatöku fyrir 2 vikum. Jebb, í annað skipti á ævinni. Vonandi náðist allt í þetta skipti því mig langar sko ekki aftur. Ég fór eftir öllum fyrirmælum og held að ég hafi farið nokkuð létt í gegnum þetta. Afrekaði að borða 1 líter af ís á einum sólarhring.

- Ég er í pásu frá BC vegna hálskirtlatökunnar. En vá hvað ég sakna æfinganna. Stefni að því að fara aftur eftir páska. Á meðan verður World Class að duga. Ég hef breytt æfingunum mínum eftir BC-ið og tek nú magaæfingarnar í hundraðatali og armbeygjur þar á milli. Ég er ekki alveg búin að gera það upp við mig hvort ég ætli að gera Froska. Læt þá kannski bara duga heima úti í garði.

- Við fjárfestum í Garmin eftir laaaanga umhugsun. En hann var á punktatilboði hjá N1 í desember og þegar ég komst að því að ég átti 1200 og eitthvað punkta var ekki hægt að sleppa þessu frábæra tilboði. En þetta er bara snilldargræja og mér líður eins og ekta íþróttamanni með hana um úlnliðinn.

- Eiginmaður, börn og köttur eru bara hress.

Læt þetta duga í dag.

Adios....
Gurný