Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

föstudagur, júní 01, 2007

N1

Halló allir!

Get svarið það ég er að blogga í fyrsta skipti í þessum mánuði.
Ég er enn og aftur haldin svona blogg minnimáttarkennd. Mér finnst allir blogga svo gáfulega og skemmtilega að mitt blogg verður álíka spennandi og símaskráin. Núna er ég búin að taka ákvörðun: I don't give a f....

Nú er maí að verða búinn og ég verð að segja að þetta er búinn að vera fínasti mánuður.
* Við hjónakornin skruppum í barnlausa ferð til Glasgow í byrjun mánaðarins. Það var aldeilis fínt og alveg nauðsynlegt fyrir barnafólk (svona eina sinni á ári). Versluðum, fórum fínt út að borða og spókuðum okkur.
* Garðvinnan gengur vel. Garðurinn lítur bara nokkuð vel út. Eitt stykki risaösp var felld um daginn og nú eru bara 5 eftir. Læt gera það í haust þegar ég stel ekki garðyrkjufólki nágrannas í verkið.
Ætla að kaupa slatta af blómum á morgun.
* Margir frídagar :-)
* Hlaupaæfingarnar eru byrjaðar aftur. Er ekki búin að vera dugleg að mæta en er búin að fylgja prógramminu heima.
* Eiginmaðurinn spænir um allan bæ og sveitir á reiðhjólinu (hóst: Glæsilega fjallahjólinu sínu) og heldur að hann sé að æfa fyrir Tour de France. Ef þið sjáið gulan depil bregða fyrir á hjólreiðastígum á stór-Reykjavíkursvæðinu þá er það umræddur eiginmaður.
* Sumarveðrið er að lagast.
* Bara bjartsýn á að júnímánuður verði góður.

Kveðja, Garðálfurinn