Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

laugardagur, apríl 30, 2005

Sjúddírarírei

Jess, komin helgi :-) Ég fór áðan á alveg æðislega burtfaratónleika hjá fyrrverandi samstarfskennara mínu. Hún kom svo sannarlega á óvart! Ég var alveg viss um að ég myndi ekki fíla svona "sópran" söng en þetta var svo flott hjá henni. kannski þetta eru "elli"merki að vera farin að njóta þess að hlusta á svona söng. Veit ekki....
Ég fann það hvað var gott að skreppa út á föstudagskvöldi. Hefur hressandi áhrif og þ.a.l er ég ekki sofnuð í sófanum.

Nú er ég komin með nýja handáburðinn minn og hanskana. www.thesanctuary.co.uk. Þetta er langbesti áburðir sem ég hef prófað og ég hef sko prófað þá nokkra. Þetta er þannig að maður smyr ríflega af áburði á hendurnar og skellir svo á sig svona hvítum Michael Jackson hönskum. Annað hvort í klukkutíma eða sem er best að sofa með þá. Eiginmaðurinn er ekki spenntur þegar ég mæti með þetta í bólið. hehe....
En það sem skiptir mestu máli: Hendurnar eru silkimjúkar á eftir.

Jæja, ætla að horfa á einn Law and order með hanskana á mér.

Bæjó spæjó

þriðjudagur, apríl 26, 2005

Sumarið er komið...

Já, það var svo sannarlega vor í lofti í dag :-) Ég var einmitt í Húsdýragarðinum í dag með nemendum mínum. Sá mig enginn í sjónvarpinu??? Ég var rosalega lekker í viking stígvélunum.... tölum ekki meira um það.

Nýjasta nýtt er að ég er enn og aftur komin með streptókokka. Frábært-NOT... Ég sem er nýbúin með pencilín skammtinn minn. Ég vona bara ekki að ég hafi smitað alla sem ég er búin að vera í samandi við síðustu 3 daga. Lauslega talið eru þetta 130 manns. ÚPS...
Ég hugsa að ég neyðist til að vera heima á morgun. Það hentar mér engan veginn en hvenær má maður svosem vera að því að vera lasin?

Vonandi verða engar veikindafréttir í næstu færslu.

fimmtudagur, apríl 14, 2005

Að hressast

3 stk pencilín skammtar til á þessu heimili, fyrir alla nema eiginmanninn.
Á þriðjudaginn var hringt af leikskólanum og B orðinn veikur. Við fórum saman á heilsugæsluna og fengum meðal. Skarlatssótt hjá honum og streptókokkar hjá mér.
Sem betur fer eru allir á batavegi og geri ráð fyrir að mæta í vinnuna á morgun. Þægilegt að mæta einn dag og fá svo helgi... hehe, kenna svo 3 daga, frí einn dag og svo helgi aftur.

Annars er ekkert að frétta....

þriðjudagur, apríl 12, 2005

Veikindi...

Það kom að því. Hálsbólga mætt í minn háls, ég sem verð ALDREI veik. Mér finnst alltaf jafn furðulegt að fá hálsbólgu í restarnar af öðrum hálskirtlinum. Glatað. Það er víst ekkert óalgengt að þetta ógeð geti vaxið aftur eftir að þeir eru teknir.
Ég er sem betur fer ekki illa haldin, er á fótum.
Við mæðgurnar erum heima því hún er að jafna sig eftir hræðilega pest;skarlatssótt. Ég held ég hafi aldrei séð hana eins veika og hún var á laugardaginn. Hún er komin á pencilín og er á batavegi.
Ótrúlegt hvað mér finnst ég ómissandi í vinnunni. Hugsaði í morgun þegar ég vaknaði, æ ég mæti bara og fer heim ef ég verð eitthvað slöpp. Það fer allt í rugl þegar kennarinn mætir ekki. Einhver að kenna eitthvað. Svo ákvað ég að hugsa fyrst og fremst um sjálfa mig hringdi mig inn veika. Það er ekki eins og ég þurfi að vera með móral. Mig er ekki búið að vanta mikið í vetur. Ekki eins og við er að búast af móður með 2 leikskólabörn.

Kveðja, "sjúklingurinn"

föstudagur, apríl 01, 2005

Ekkert

Veit ekki alveg hvers vegna það kom svona svakalegt bil á undan síðustu færslu. Vonandi gerist það ekki núna.
Frábær föstudagur í dag. Langþráð helgi að byrja. Mér finnst alltaf smá erfitt að byrja að vinna aftur eftir gott frí. Þetta er annars búin að vera ágæt vika bæði vinnulega og leikfimislega séð. Ætla að skreppa í WC seinni partinn í dag og láta betri helminginn elda á meðan. Lúxuslíf????? Að vísu versla ég inn í matinn.

Ef þið kíkið á síðuna hjá systur minni getið þið fylgst með hvað er langt í U2 tónleikana, ég kann nefninlega ekki að setja inn svona teljara.
Góða helgi :-)