Aumir vöðvar
Náði að hlaupa 10km. Ég stóð mig bara nokkuð vel þó svo að ég náði ekki tímanum sem ég setti mér. Ætlaði að hlaupa á 57mínútum. Hlaupið byrjaði vel, hélt mínum hraða og ég var í góðum gír. Þegar ég kom út á Norðuströnd var eins og ég hlypi á vegg (eða kannski var það rokveggur, ég veit það ekki). Ég átti eitthvað svo erfitt með mig frá 6-8km. Það var töluverður vindur en það var aðallega að sjá þessa löööngu leið sem var framundan. Ég náði að herða mig upp og komast í mark undir klukkutímanum. Ég bætti mig um 3 mín frá því í fyrra :-). Ég held bara áfram að bæta mig næst. Nú ér ég búin að setja mér ný markmið. Ekkert verður gefið upp hér nema það að ég ætla að halda áfram að hlaupa í vetur.Við fórum svo í Latarbæjarhlaupið. Get svo svarið það að ég er aumari í líikamanum eftir það hlaup en eftir 10km. Ég vaknaði í morgun stíf í hálsinum með eymsli í herðunum. Það er ekkert smá átak að hafa 17 kg á öxlunum á háhesti. Krakkarnir skemmtu sér hið besta og þetta var skemmtilegur dagur, er það ekki fyrir mestu? Sé fram á annasama viku í byrjun skólaársins, undirbúning kennslu ofl. ofl.Góða nótt.
Latarbæjarhlaupið
er á morgun. Það er mikil spenna á mínum bæ. Aðal spenningurinn er hvort Glanni glæpur laumi sér í hlaupið :-)Ég ætla samt fyrst aðeins að hlaupa 10 km. Ég er ekkert stressuð fyrir þetta því ég gat þetta í fyrra og núna er ég í betra formi. Aðal höfuðverkurinn snýst um það í hverju ég á að vera, hvað ég á að borða í morgunmat, hvenær þarf ég að vakna, hvar á ég að leggja???
Ætla að fara að sofa bráðum og vakna svo kl.6.50 í fyrramálið, fá mér Special K og ákveða allt hitt.Þetta verður bara gaman. Er meira að segja búin að skella nýju lögum á I- podinn.Hlaupakveðjur :-)
21/2 dagar eftir
Stundin nálgast óðfluga. Eftir nákvæmlega 4 daga (2 og hálfur virkir) fer ég að vinna aftur eftir sumarfríið. Tilfinningin er bæði góð og ekki svo góð. Mér finnst spennandi að takast á við ný verkefni, nýtt námsefni og unglingana og svo á hinn bóginn finnst mér alveg sérlega gott að vera í fríi með sjálfri mér.Svona er þetta bara. Ætli maður yrði ekki hundleiður á því að vera ekki í vinnu? Held það.Ég lærði fullt af nýjum orðum í gærkvöldi. Ég las yfir 25 blaðsíður af lokaverkefni "litla bróður".Ég var svo fegin þegar ég sá kunnugleg orð eins og lotukerfi. Hugsa sér að litli bróðir manns er að fara í mastersnám til ÚTLANDA!!! Sé fram á góða afsökun til þess að þurfa að fara í heimsókn til Köben í tíma og ótíma (hef reyndar ekki þurft neinar afsakanir fram að þessu).Við hjónin fjárfestum í glæsilegum reiðhjólum á föstudaginn. Þetta er búið að standa til lengi og hefur undirrituð ekki átt hjól í ca 12 ár. Við erum óþægilega mikið í stíl á þessum hjólum (var einhver að tala um hjón í krumpugalla í stíl?), en samt um leið mjög sportleg.Nú eru komnir skemmtilegir hlutir á óskalistann: Hjólagrifflur og vatnsbrúsi :-)
Jæja, ekki nema 8 dagar í Reykjavíkurmaraþonið. Er bara spennt að hlaupa og sjá hvað ég get bætt tímann minn frá því í fyrra. Stefni að því að bæta mig um 5 mín. Áfram ég.Mér finnst Latabæjarjhlaupið sérlega vel til fundið og ætlum við að fjölmenna. Fæ samt nokkra tíma til að jafna mig milli hlaupa. Þetta verður örugglega skemmtilegt. Allaveganna mikil spenna á mínu heimili fyrir þetta hlaup.Hjólakveðjur......
Komin aftur
Færslan í dag verður í skeytastíl:
Veiddi 2 fiska.Veðrið var meiriháttar. Var hrikalega svöl með veiðihattinn.Kem heim þreytt en heilinn á mér er úthvíldur.Efst á óskalistanum núna eru vöðlur og flugukastnámskeið :-), en ég hef nógan tíma til að verða mér út um þetta því ég fæ víst ekki að fara með fyrr en árið 2008 nema e-r bjóðist til að passa krakkana næsta sumar.Meira síðar.