Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

mánudagur, júní 26, 2006

Ekki er ráð nema í tíma sé tekið

sunnudagur, júní 25, 2006

Jónsmessa

Út í nót að velta sér upp úr dögginni. Er það ekki málið???

Fór í Jónsmessuhlaupið í gærkvöldi. Þetta er í þriðja sinn sem ég tek þátt í því. Skemmtilegt hlaup og góð stemning. Veðrið í gær var mjög hentugt hlaupaveður :-) fyrir 5 km mína.
Var fyrir ofan miðju í mínum aldursflokki og er bara ánægð með það. Ég ætlaði að hlaupa á aðeins betri tíma en ég endaði á. Ég fékk nokkur olnbogaskot þegar hlaupið var ræst sem sló mig aðeins út af laginu. Fyrir hlaupið hittist hlaupahópurinn minn og tók "létta" upphitun fyrir hlaupið. Ég held því miður að þetta hafi verið aðeins og þung upphitun. En... lélegir íþróttamenn kenna öðrum um, ég hef bætt mig sem er bara flott!!!
Í fyrra var ég búin að mæta á 3 hlaupaæfingar, hljóp 3 km skemmtiskokk í Jónsmessuhlaupinu og
ætlaði varla að hafa það af. (Stundum þarf ég að minna sjálfa mig á að líta á björtu hliðarnar).

Á morgun verður löng og róleg æfing... víííí....

Sumarfrí fjölskyldunnar er tæknilega séð byrjað. Við erum með langan lista sem fjölskyldumeðlimi langar til að gera.
Þar á meðal eru skriljón sundferðir og gönguferð á Esjuna. Sjáum hvað tvö 4 ára börn komast langt upp.

Góða helgi :-)

föstudagur, júní 16, 2006

Latibær vs.Jói Fel

Latibær er farinn í frí. Það varð mikil sorg á mínu heimili þegar það uppgötvaðist. Glanni glæpur og félagar búnir að vera fastir liðir á föstudagskvödum. Hátta og svo upp í sófa með sæng. Bara toppurinn.

EN..... þökk sé Jóa Fel sitjum við nú saman í sófanum á fimmtudagskvöldum. Krakkarnir eru alveg jafn límd yfir þessu og ég. B sagði í kvöld: Mamma, við erum ekki ennþá búin að baka skúffukökuna sem hann bakaði síðast! Verðum að gera eitthvað í því... hehe...

Um helgina verða grilluð humarspjót í forrétt og ekki kengúrusteik í aðalrétt. B stakk upp á því að það væri hægt að nota lambakjöt í staðinn. Í eftirrétt verður algjör gúmmelaði kaka. Sleeeef.

Ekkert mál :-) Vona að Jói vinur okkar verði búinn að setja uppskriftirnar inn fyrir helgi.

Jóa Fel kveðja,

P.S. Boston ferðin var ÆÐI. Meira um hana síðar.

föstudagur, júní 09, 2006

HM HM HM HM HM

Í dag byrjar HM fyrir þá sem ekki vita það.

Ég heyrði viðtal við fjölskylduráðgjafa í Ísland í býtið í vikunni. Hún var að ræða hvaða áhrif HM hefur á hjónabandið. Mér fannst þetta alveg ferlega fyndið því ekki er gert ráð fyrir að kvenmenn hafi nokkurn áhuga á knattspyrnu. Eitt sem hjón/pör geta gert er að ræða málin áður en HM byrjar. Spurningin er: Hvernig ætlum við að leysa það að þú (karlinn) ætlar að horfa á fótboltann? Þannig sparast pirringur og leiðindi.
Hún var búin að reikna það út að ef að horft er á flesta leikina, horft á 4-4-2 þættinga líka þá gera þetta um 40 stundir á viku. Þetta er alveg hellingur ofan á allt sem þarf að gera t.d. vinna.

Á mínu heimili er spurningin: Hvernig förum við að því að horfa á leikina. Aðal vandamálið eru leikirnir kl.5. Þá eru krakkarnir heima og þurfa sína athygli. Við erum búin að bjarga hinum tímasetningunum því við erum bæði í fríi.

Ég er ekki alveg búin að gera það upp við mig með hvaða liði ég ætla að halda, en ég er spennt að sjá hvað Englendingar gera. Þeir hafa alltaf verið í vandræðum á stórmótum.

HM kveðjur frá fótboltaeiginkonunni :-).