Fimmti
Fimmti verkfallsdagurinn.
ÚFF... mér líst ekki vel á stöðuna. Nú á ekki að ræðast við fyrr en eftir viku. Ég skil bara ekki hvernig svona umræður fara fram. Samningar okkar eru búnir að vera lausir síðan í lok mars - fyrir 6 mánuðum. Hvernig stendur á því að núna skyndlega er allt komið í óefni. Hvað hafa menn verið að ræða fram að þessu? Ég hélt að það væri alveg á hreinu að kennarar setja vinnutímarammann í algjöran forgang. Hafa samninganefndirnar ekki verið á sömu fundum eða hvað???
Ég held að þessir samningar séu upp á líf og dauða fyrir kennarastéttina. Allaveganna er ég alltaf með augun opin fyrir tilbreytingu.
Ég er búin að lesa margar greinar og innlegg síðustu daga þar sem fólk (sem er ekki kennarar) er að spyrja hvernig standi á því að maður hafi farið í Kennó þegar það hafi verið alveg ljós í upphafi starfið væri ekki hálaunastarf. Málið er að þegar maður er ungur veit maður ekki hvað það kostar að lifa.
Ég gerði mér ekki grein fyrir hve mikil vinna væri á bak við þessi laun. Að vísu hef ég hækkað eitthvað smá núna því ég fæ aukalega greitt fyrir stigstjórnina.
Þegar ég miða við mömmu sem er búin að kenna í 30 ár lengur en ég þá er hún ekki með nema örlítið hærra kaup en ég. Mjög upplífgandi að hugsa um það, eða þannig.
Jæja, ég ætla ekki að nöldra meira í dag.
Ég fór í nýju Bónus búðina í morgun. Heilsaði Jóhannesi meira að segja. Þetta er ferlega flott búð og tími til komin að bæta þá gömlu.
Búin að vera hreingerningaróð í dag: Skipta um á rúmunum og taka til í barnaherberginu. Mér finnst mjög fínt að gera það þegar þau eru ekki heima því þau vilja vera of hjálpleg.
Bless í bili,

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home