Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

þriðjudagur, september 21, 2004

Annar

Dagur tvö í verkfalli.
Það er frekar furðulegt að vera í verkfalli. Mér finnst hálfpartinn eins og ég sé að svíkjast um. Er bara eitthvað að dóla mér.
Mér finnst líka erfitt að starfið mitt skuli vera svona mikið milli tannanna á fólki. Sjónvarpi, útvarpi og alls kyns skítkast hér og þar á netinu. Allir hafa skoðun á launum kennara og margir þykjast vita hvað við höfum það gott. Þetta sama fólk ætti nú bara að prófa að kenna einn dag og tala svo við mig.

Í dag fór ég í leikfimi eftir að vera búin að skutla börnunum í leikskólann. Tók góða æfingu og var ekki alltaf að kíkja á klukkuna eins og ég þarf að gera þegar ég fer snemma á morgnana.
Skrapp aðeins í Kringluna og náði að eyða smá hluta af gjafakortinu. Keypti mér gallabuxur og peysu í Vero moda. Hvað ætli séu mörg ár síðan ég keypti mér eitthvað þar??? Ég var mest hissa yfir því að ég passaði í buxurnar þarna.
Keypti mér svo belti í annarri búð.

Í morgun var ég boðuð á verkfallsvakt í fyrramálið kl.9. Spennandi því ég hef auðvitað aldrei prófað það áður.
Kannski ég fari snemma og taki góða brennslu.

Adíos......

P.S. Ég ætlaði aldrei að hafa þetta blogg svona dagbókar blogg en á meðan ég er í verfalli verður þetta hálfgert verkfallsblogg.


0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home