Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

föstudagur, september 03, 2004

Kaupa kaupa...

Halló!
Fór í Kringluna áðan til þess að kaupa mér fullt af einhverju sniðugu. Ég fékk nefninlega bæði pening og gjafakort í afmælisgjöf. Ég ætla að fá mér leikfimisbuxur og kannski bol við. Fann ekkert svoleiðis sem mér fannst fara mér vel.
Kíkti í nokkrar fataverslanir. Sá þar ýmislegt sem kom til greina en ég var ekki sannfærð.
Kíkti í nýja skóverslun. Þar kosta stígvel (ekki gúmmí) 34000. Ég þyrfti þá aðeins að bæta við afmælisgjafirnar.. glætan spætan.
Gekk svo langt að kíkja í Karen Millen. Þar sá ég nákvæmlega ekki neitt sem ég mögulega gæti eytt peningunum í.
Niðurstaða: Fór í Hagkaup og verslaði í matinn og fór út.
Fúlt.
Ég geymi þá bara gjafakortið aðeins því mig langar í nýja vetrarúlpu/kápu. Peninginn nota ég í leikfimisföt. Hugsa að ég kíki í Fitness sport í Laugum og athugi hvað er til þar.

Ég er glöð yfir því að það er komin föstudagur :-)

Kveðja, The big shopper.. eða þannig sko

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home