Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

föstudagur, ágúst 06, 2004

Niðurtalningin

er byrjuð.
Sumarfríið mitt er að verða búið. Ég trúi því varla ennþá að núna eru bara 10 dagar eftir. Hvert fór fríið mitt?
Þegar ég rifja lauslega upp hvað ég er búin að gera er listinn nokkuð langur. Bara núna síðast(mánud-miðvikudag) fór ég í veiðiferð með pabba og litla bró(hann getur samt varla talist lítill). Pabbi sendi mér myndir úr ferðinni í gær: Pabbi með einn 5 punda hlunk, Stebbi með einn 4 punda og að rifna úr monti, ég standandi í allt of stórum vöðlum með stöngina mína í hendinni. Ferlegt svekkelsi, ég veiddi ekki eina bröndu. Missti að vísu einn ferlega stóran (allaveganna 5 pund). Við stunduðum rannsóknarstörf þarna til þess að vera vel undirbúin fyrir næsta sumar. Litli sjór er fyrir þá sem kunna ekki að veiða því þar getur maður verið nokkuð viss um að fá kannski 1 stk (ég missti minn einmitt þar), Hraunvötnin eru vötnin sem maður á að veiða í.
Bókuðum kofann að sama tíma að ári. Þrátt fyrir afleysið var mjög gaman og fínt að komast aðeins í burtu.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home