Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

laugardagur, september 18, 2004

Verður verkfall?

Verður verkfall???? Hvað verður það lengi???
Ég er búin að fá þessar spurningar ansi oft síðustu daga. Því miður get ég ekki svarað þessu en auðvitað vonar maður að þetta verði ekki. Útlitið er ekki gott eins og staðan er í dag. Í gær þegar ég fór heim "stalst" ég með 2 poka af möppum sem ég ætla að skoða ef það verður verkfall. Ætla að koma lagi á dönskuefnið mitt og landafræðina. Þetta er verkfallsbrot þannig að ef einhver spyr þá er ég að þessu núna, þ.e. 2 dögum fyrir fyrirhugað verkfall.
Ég ætla ekki að fara að væla yfir kennarastarfinu og réttlæta launakröfur okkar. En ég ætla að fara lauslega yfir síðustu viku sem var óvenju erilsöm.

Mánudagur: Undirbjó þátttöku skólans í Evrópskri samgönguviku. Ljósritaði blöö, fann myndavélar ofl. Undirbjó stigsfundinn, fann til bæklinga og fleira sem ég átti að láta kennarana hafa.

Þriðjudagur: Mætti 7.45 því nemendur mínir áttu að gera könnun á því hvernig nemendur og starfsfólk kemur í skólann. Heppnaðist svo vel!
Eftir kennslu kl.14.10 var stigsfundur sem ég stýrði. ÚPS............ ég man það núna: Ég á eftir að gera fundargerðina. Skelli henni kannski inn núna á eftir. Geri fundargerðina yfirleitt daginn eftir.

15.00-16.30 var aðalfundur í starfsmannafélaginu og svo fór trúnaðarmaðurinn yfir verkfallsmál.
Um kvöldið: Gekk frá námsáætlunum 6.bekkar.

Miðvikudagur: Undirbjó námsefniskynningu fyrir foreldra.

Fimmtudagur: Námsefniskynning fyrir foreldra.
Eftir skóla: Þurfti aðeins að fara yfir mál tengd Evr. samgönguviku. Var í 45 mín. viðtali við skólastjórann í tengslum við mastersritgerð hans.
Skellti vikuáætlun í tölvuna. Ég geri það einstaka sinnum til að gleðja krakkana. Þá þurfa þau ekki skrifa allt niður á föstudegi.

Kl. 18.40 þegar fjölskyldan var nýsest við matarborðið hringdi móðir drengs og þurfti rétt aðeins að tala (n.b. ég sagði henni að ég væri að borða, samt tók samtalið 7 mín). Djö...... dónaskapur.

Um kvöldið fór ég í óvenju viðburðarríkan saumaklúbb. Segi ekki meir.

Föstudagur: Fór með 2 nemendur mína í Höfuðborgarstofu í gatinu mínu. (Fæ það samt borgað). Dreif mig heim eftir kennslu.

Fyrir utan allt þetta sinnti ég hefðbundnum störfum: Kenndi, undirbjó mig, svaraði tölvupósti, fyllti inn í stundvísi, setti dropa í sýkt auga ofl. ofl.

Ég var beðin um að vera fulltrúi kennara í foreldrafélaginu. Það er 1 fundur í mánuði og greiddir 4 tímar aukalega fyrir það. Sagði já.

Já, svona var að vera kennslukona í síðustu viku!!!!

Um helgina er ekkert sérstakt á döfinni.




0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home