Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

þriðjudagur, september 21, 2004

Fyrsti

Fyrsti í verkfalli.

Ja, hérna þetta er skollið á. Þá hef ég prófað það að fara í verkfall.

Dagurinn í dag var alveg ágætur. Ég veit ekki hvað er langt síðan ég hef haft tíma bara fyrir mig og það heilan dag. Ekki nóg með það þá sé ég fram á alla þessa viku.
Ég fór í WC í morgun og hitti þar eina kennaravinkonu mína (hitti hana örugglega í fyrramálið líka). Þegar ég kom heim var ég eitthvað svo óróleg, eins og ég væri í tímaþröng og þyrfti að ná öllu strax. Skúraði baðherbergisgólfið, setti í vél, gekk frá þvotti ofl. Fór svo í Bónus og Hagkaup og sótti krakkana kl.15.30.
Ég ætla að slaka aðeins á á morgun. Ætla í WC og sjá svo til. Ég hef ekki fengið neinar tilkynningar um verkfallshitting ennþá.

Verkfallskveðjur, kennarinn

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home