Fjórði
Fjórði dagurinn.
Byrjaði daginn á því að fara í sund. Fór í Laugardalslaugina. Úff... mér leið eins og ég væri komin í sund á Hrafnistu. Meðalaldurinn snarlækkaði þegar ég stakk mér til sunds. Synti á HRAÐbrautinni, en greinilegt að allir sem þar voru hafa misskilið hvað hraðbraut er. Synti heilan km. sem er bara ferlega gott hjá mér því ég hef ekki farið í sund svo lengi. Eiginlega er synd að synda... nei djók.... synd að halda þessu ekki betur við.
Þó að meðalaldur sundlaugagesta var hár í morgun sá ég hvað þetta fólk var í góðum gír. Greinilega fullt af vinkonum og kunningjum í búningsklefanum. Þegar ég svo kom fram var hópur af eldri mönnum að fá sér kaffi, svala ofl. Svaka stemning.
Kveðja, Sunddrottningin.
P.S. Er víst að fara í áframhaldandi eldhúsinnréttingaferð með múttu eftir hádegi.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home