Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

miðvikudagur, september 22, 2004

Þriðji

Þriðji verkfallsdagurinn.
Fór í smá leiðangur í morgun ásamt samstarfskonu minni. Við vorum sendar í Korpuskóla og Víkurskóla til að athuga stöðuna. Það var bara gaman að skoða skólana og fróðlegt.
Þegar við komum tilbaka í verkfallsmiðstöðina var fullt út úr dyrum og allt of heitt þarna inni þannig að við ákváðum að láta þetta gott heita.

Eftir hádegi fór ég með mömmu í eldhúsinnréttingaleiðangur. Ég komst að því að ég er þvílíkt inni í þessum málum eftir innlit-útlit áhorf í mörg ár.
Verst að hafa svona tíma til spóka sér... ég sá gardínur sem ég gat hugsað mér og gardínur í barnaherbergið.
En.... ég verð bara að bíða þangað til verkfallið leysist og þá fer ég að versla.

Kveðja, Kennarinn í verkfallinu.

P.S ég er svo illa haldin af harðsperrum í dag að það er ekki fyndið. Fór ekki að æfa í dag en er að spá í að fara í sund í fyrramálið.




0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home