Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

sunnudagur, september 26, 2004

Scooter rúlar

Góðan sunnudag!

Hver hefði trúað því að ég færi á Scooter tónleikana og ég fór líka síðast!!! Þessir tónleikar voru í boði VISA. Takk fyrir það.
Ég skemmti mér konunglega enda kann ég öll lögin með honum. Við sátum í stúkunni til að byrja með og svo fórum við niður á gólf.
Meðaldur tónleikagesta var frekar í lægri kanntinum en mér sýndist ekki vera jafn ungt fólk og á síðustu tónleikum.
Við hjónakornin vorum frekar gáttuð á útliti unga fólksins í dag. Í fyrsta lagi er annar hver í yfirvigt og virðist það ekki skipta máli þegar klæðnaður er valinn. Parið sem sat fyrir framan okkur gafst upp á að sitja hlið við hlið og fundu það út að það væri þægilegra að hafa eitt sæti á milli. (Spikið vall út um allt).
Í öðru lagi eru margar stelpur klæddar eins og bestu gleðikonur. Við rákumst svo á stelpuhóp á brjóstahaldaranum.
Í þriðja lagi voru allt of margir sem reyktu.
Ég bara spyr: Hvar eru foreldrarnir þegar þessir krakkar eru að útbúa sig til að fara.
EN.... það var gott að sjá að það voru nokkrir foreldrar sem voru greinilega þarna með krökkum sínum. Það eru þá til foreldrar sem er ekki alveg sama.

Síðan ég vaknaði er ég búin að vera að raula... FIRE..... How much is the fish????

Kveðja, Scooter aðdáandi nr.1.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home