Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

þriðjudagur, september 28, 2004

Sjöundi

Sjöundi verkfallsdagurinn.
Nú fer þetta að hætta að vera sniðugt. Ég þarf alvarlega að fara að finna mér eitthvað sniðugt að gera. Hugsanlega fer ég og kaupi mér jólaföndurdót. Ég er í algjöru letikasti í dag. Nenni engu. Nenni ekki að taka til, nenni ekki að taka einn skáp. Bið eiginlega bara eftir því að geta sótt krakkana.

Ég fór í leikfimi í morgun og var mætt kl.6.00. Mér fannst gáfulegt að mæta svona snemma til þess að detta ekki úr "mætasnemmaámorgnana" gírnum. Ég fæ eitthvað geðveikiskikk út úr því að mæta í leikfimi um miðja nótt. Það er greinilega fleiri geðveikir en ég því það var alveg fullt í morgun.

Við kennararnir hittumst í gærmorgun svona aðeins til að þjappa okkur saman og til að ræða málin. Það var mjög fínt. Mér finnst nú enginn bjartsýnistónn í fólki, en á meðan ekkert er rætt saman gerist auðvitað ekkert.

Meira síðar,
letipúkinn.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home