Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

sunnudagur, ágúst 28, 2005

Diesel gallabuxur

Helló!
Skrapp í Kringluna í gær eftir að ég frétti að það væri hægt að kaupa Diesel gallabuxur á afborgunum. Var að spá í að skella mér á eitt par. (je ræt).
Ég kíkti frekar í Next þar sem hægt er að kaupa ca 5 gallabuxur fyrir eitt stykki Díesel skvísel grallarabrækur.
Það er svo sem ekki í frásögur færandi nema hvað að ég heyri tvær afgreiðsludömur ræða eitthvað sem ég er ekkert sérstaklega að hlusta á. Þá segir önnur: Ég er svona 4-5 kg þyngri en ég á að vera! Hver segir hvað maður Á að vera???? BTW þessi stelpa var svo grönn að hún var með innfallinn maga og var svona helmingurinn af mér á hlið.... Fannst þetta bara doldið dapurt.

Ég er óðum að komast niður á jörðina eftir stórkostlega íþróttaafrekið mitt. Ég fór meira að segja að hlaupa á föstudaginn 6 km hring. Ég var mjöööög létt á fæti.
Ég hef aðeins verið að hvíla mig því skórnir mínir eru búnir á því og tærnar mínar þurfa smá pásu.
Ég er á leiðinni að fara að velja mér nýja skó.


sunnudagur, ágúst 21, 2005

Stór dagur :-)

Í gær var svo sannarlega merkilegur dagur á íþróttaferlinum. Ég hljóp 10km í Reykjavíkurmaraþoninu!!! Náði því á tíma sem ég bjóst við. Einum klukkutíma og 1 mínútu. Á að vísu eftir að sjá tímann á www.marathon.is, en þetta er tíminn sem ég mældi.

Ég er svo ánægð með sjálfa mig að það nær engri átt (hættu að lesa hér ef þú vilt ekki heyra meira grobb). Ég kom hlaupandi í mark með bros á vör með ofurskammta af adrenalíni í æðunum. Þetta var alveg frábært :-)
Ótrúlega gaman að sjá árangur erfiðisins.
Nú er ég alveg harðákveðin í að halda áfram hlaupunum. Hef hugsað mér að hlaupa 2x í viku í vetur og æfa svo í WC líka.
Þar sem ég á afmæli á næstunni er búið að lofa mér nýjum hlaupaskóm í afmælisgjöf. Skórnir mínir (15.000 krónar Asics skór) eru barasta búnir. Ég á hlaupabuxur, nú vantar mig bara hlaupajakka.

Hlaupakveðja

föstudagur, ágúst 19, 2005

Allt tilbúið

Allt er að verða tilbúið fyrir morgundaginn.
  • Búin að þvo hlaupagallann,
  • búin að fara í pastaveisluna
  • búin að sækja keppnisgögnin
  • búin að biðja guð um meðvind
  • búin að setja úrval af bestu hlaupalögunum á mp3 spilarann
  • búin að borða orkusúkkulaði sem heitir því skemmtilega nafni Snickers marathon.. það hlýtur að gefa mér mikla orku því annars hefði ekki verið að gefa það í pastaveislunni
  • búin að hlaupa leiðina í huganum
  • búin að keyra leiðina

Nú á ég bara eftir að hlaupa.

sunnudagur, ágúst 14, 2005

Blákaldar staðreyndir....

1. Sumarfríið mitt er búið.
2. Þetta er búið að vera fínt frí.
3. Eftir 5 daga ætla ég að hlaupa 10km.
4. Ég er sannfærð um að ég geti það.
5. Ég er búin að fara í 3x í bíó á 10 dögum.
6. Það eru fleiri skipti en á síðasta ári (þar af Madagaskar 2x).
7. Ég á bráðum afmæli....
8. Sigli hægt og örugglega inn í fertugsaldurinn.
9. Farin að laga til í pennaveskinu mínu.

þriðjudagur, ágúst 09, 2005

Búin að fá málið aftur

Jæja, ég er búin að fá málið aftur eftir U2 tónleikana og Köbenferðina.
Ekki misskilja mig, ég missti ekki röddina heldur var ég svo uppnumin eftir þessa upplifun að ég gat ekki komið upp einu orði. Núna er vika síðan og ég er að komast niður á jörðina aftur.
Hér er tónleikasagan:
Við ákváðum að mæta tímanlega þar sem við höfum ekki mikla reynslu af tónleikum af þessari stæðrargráðu. Vorum komum fyrir utan Parken um 6.30. Fengum okkur pylsu, ég keypti bol. Á þessari stundu komu 3 regndropar úr loftinu. Við ákváðum að fara inn. Þetta tók allt saman dágóðan tíma.. klósettferð ofl. Anyway... við ákváðum þá að fara út og athuga stöðuna og sjá hve margir voru komnir á "plænen". Um leið og við stígum út kemur þessi úrhellisrigning! Fokið var í flest skjól (ekki mikið í boði). Við hjónin ákveðum að fórna okkur og hlupum til þess að reyna að fjárfesta í regnplasti. Við hlupum út um allt og alltaf urðum við blautari og blautari. Ég man eftir því að ég hugsaði: Æ, þetta verður ömurlegt. Á einhvern undraverðan hátt kem ég auga á einn sölumann regnplasts. Þau kostuðu morðfjár: 50 kall danskar. Hugsa að ég hefði keypt það á 100 kall. Í stuttu máli þá bjargaði þetta plast okkur gjörsamlega. Gátum hlýjað okkur í því. Það stytti upp en svo fór að hellirigna aftur þegar tónleikarnir voru hálfnaðir. Ég held að ég hafi aldrei í lífi mínu orðið svona blaut. En þetta urðu bara eftirminnilegri tónleikar fyrir vikið. Ég man ég stóð og klappaði og horfði á rigninguna renna niður eftir handleggjunum mínum og hugsaði: Guð, þetta er eins og að vera í baði. Ætli úrið mitt sé vatnshelt.


Við tókum okkur stöðu fyrir framan miðju þegar 2 tímar voru í tónleikana og ég held að það hafi bara verið góð hugmynd því þetta var bara fínn staður.
Þegar tónleikarnir byrjuðu fékk ég nettan ánægjuhroll. Uno... doz.....tres.... Úff, ég fæ gæsahúð bara að skrifa þetta.
Þetta var svo flott show! Lögin æði... ég söng með næstum öllum lögunum... geðveik stemning....

Eftirminnilegustu lögin voru: One, somethimes you cant make it on your own, elevation, where the streets have no name, pride (in the name of love), ofl.ofl.

Niðurstaða: Þessir tónleikar fara á topp 10 listann minn yfir frábærustu upplifanir lífs míns! í sama flokki eru: Fæðing barna minna, brúðkaupið mitt og fleira í þessum dúr.
Nú langar mig bara að fara aftur á U2 tónleika :-)

Amen...

þriðjudagur, ágúst 02, 2005

U2

Ég er komin heim, búin að fara á tónleikana.
Skrifa meira síðar, en eitt get ég sagt: Það var ólýsanlega meiriháttar!!!!!!!

Adios,