Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

mánudagur, júlí 31, 2006

Ég fer í fríið... ég fer í fríið.. trallalala

Ég er að fara í ca 50 klukkustunda áreitisfrí. Ég er að fara á stað þar sem er ekkert útvarp, engin tölva, gsm samband mjög stopult, börnin mín verða heima og eiginmaður. Ég ætla bara að hlusta á umhverfishljóð og fagnaðarhróp þegar fiskur bítur á.

Ég er að fara langt upp á hálendi í árlega veiðiferð familíunnar. Eftir að börnin fæddust höfum við þurft að skiptast á að fara og nú er röðin semsagt komin að mér. Þau ættu að geta komið með eftir svona 2 ár.

Ég er búin að fjárfesta í svakalega smart veiðhatti sem er með innbyggðu flugnaneti. Splæsti líka í úlnliðshlífar (svitabönd) til þessa að setja utan yfir peysuermarnar svo flugurnar geti ekki smeygt sér inn þar. Það er nefninlega sá möguleiki að það verði mikil fluga þarna og ég er sérlega gómsæt á bragðið.

Aflatölur verða settar inn á miðvikudagskvöldið :-)

Veiðkveðjur

miðvikudagur, júlí 19, 2006

Sól sól skín á mig...

Ský, ský burt með þig.....
Það kom að því. Hélt að ég sæji ofsjónir í morgun þegar ég sá sólargeislana troða sér á milli rimlanna. :-).
Krakkarnir og ég áttum góðan dag. Fór með þau í Sportlandið í morgun við miklar vinsældir. Þau fá að fara svo sjaldan þangað að þeim þykir ægilega mikið sport að fara.
Uppgötvaði of seint að ég hefði getað tekið sundfötin með. Geri það næst. (á föstudaginn??)

Ég var með nýjan vatnsbrúsa í dag (takk Glitnir). Var búin að hlaupa í 10-12 mínútur á ágætum hraða og þurfti að súpa á vatninu. Það vildi ekki betur til að ég hef ekki smellt lokinu á nógu vel þannig að það sullaðist vatn út um allt! Ég var bara svöl og lét eins og ég hefði oft lent í þessu áður, þurrkaði sullið og hélt áfram. Er þetta ekki dæmigert fyrir mig???

Ég má til með að mæla með bók sem ég var að klára. Flugdrekahlauparinn. Þetta er ein magnaðasta bók sem ég hef lesið í langan tíma. Ég hefði aldrei lesið hana nema að því að mamma sagði mér að lesa hana. Las aftan á hana.. eitthvað um vináttu og Afganistan, það hefði verið nóg til þess að ég hefði aldrei lesið hana.
Semsagt: Frábær saga, sérstaklega vel skrifuð og hefur áhrif á lesandann. Ef þú lest eina bók á ári, lestu þessa.
Ég er að hugsa um að lesa James Patterson næst, svona heilalausa spennusögu.

Kveðja til allra með sól í hjarta :-)

föstudagur, júlí 07, 2006

Sól og blöðrur

Mikið er gaman að vera til í dag. Sólin loksins farin að láta sjá sig :-) Því miður eru veikindi á heimilinu þannig að dagsferð fjölskyldunnar frestast aftur.

Ég hljóp 8 km í gær. Nokkuð gott hjá mér svo ég grobbi mig aðeins.
Ég er því miður að deyja í fótunum. Blöðrur... djö.... nýju Nike skórnir hafa ekki alveg verið vinir mínir, en það getur verið að ég þurfi að kaupa mér eitthvað innnlegg í þá. Þeir eru góðir en aðeins of víðir á mér, lengdin er fín.
Hef verið að hlaupa í gömlu asics skónum en þeir voru vondir við mig í gær. Gæti verið að ég þyrfti að fá eithverja aðstoð við að velja rétta skó. Nenni þessu ekki lengur.

Jæja, farin út í góða veðrið að klippa dauðar trjágreinar.

P.S. Skil núna hvers vegna ég fékk nokkur olnbogaskot í Jónsmessuhlaupinu. Ef þið skoðið myndir frá startinu sést undirrituð fremst í flokki. Fyndið.....þeir sem hafa verið fyrir aftan mig hefur legið svona rosalega á að komast áfram.