Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

mánudagur, mars 27, 2006

FLUTTTTTT

Nýjustu fréttir: Familían er flutt :-) Úff, þetta er búin að vera mikil vinna, en skemmtileg.
Í miðju kafi seldist íbúðin okkar þannig allt er bara að ganga upp. Orðatiltækið: Hlutirnir hafa tilhneygingu til að reddast :-) sannast í þetta skiptið.

Við erum ferlega ánægð með nýja heimilið. Er alveg viss um að okkur á eftir að líða vel hérna. Verð að fara á hraðnámskeið í garðaumhirðu því kunnáttan mín nær ekki lengra en að reita arfa. Ég átti agalega erfitt í fyrravor þegar ég var að velja sumarblóm á svalirnar mínar (n.b í eina körfu). Gat ekki ákveðið mig, hvernig haldið þið að verði þegar ég þarf að velja í mörg ker?

Adios amigos.



þriðjudagur, mars 14, 2006

Heppin eða óheppin?

Fékk póst í dag frá BA (British airways) um að ég hefði unnið ferð fyrir 2 í jómfrúarfluginu. Flug og hótel á 4* hóteli í 3 daga. Kampavín við brottför, einn dinner ...... sun-mið
Æði... eða þannig sko. Get ekki notað ferðina :-( Þetta er akkúrat flutningshelgin og svo er ég að fá kennaranema á mánudeginum. ÆJI... ég sem vinn aldrei neitt þarf akkúrat að vinna þegar ég get ekki með nokkru móti notað vinninginn.

Ekki þýðir að gráta Björn bónda. Þetta er nú einu sinni bara London, ég var þarna fyrir ári. (ein að sannfæra sjálfa sig).

Gleðitíðindin eru þau að við fáum húsið afhent á morgun :-) Spennandi!!!

Næstu 10 dagar fara semsagt í málingavinnu og kassaburð. Bara gaman.

sunnudagur, mars 12, 2006

Flensa, skensa...

Helmingurinn af familíunni er með flensu. B var svo góður að veikjast í morgun þannig að þetta gengur þá væntanlega yfir á styttri tíma. Ég man hreinlega ekki hvenær þau voru veik á sama tíma síðast. Man eftir því þegar þau voru um 1 árs, annars ekki.
Við erum vel byrg af ýmsum tegundum af Svala og fleira góðgæti til þess að reyna að freista þeirra með.

Tökum einn dag í einu í skipulagningu. Ég verð heima á morgun. Hugsa að ég eigi inni a.m.k. 5 veikindadaga vegna barna. Ótrúlegt að maður fái 7 daga á ári sama hversu mörg börn maður á.

Fór út í göngutúr áðan með I-podinn minn :-) Fannst ég vera svaka pæja, þurfti að passa mig að syngja ekki hástöfum með.

Bæjó, spæjó....Flensumamma

föstudagur, mars 10, 2006

Uppskriftir, veikindi, kassar ofl.

Halló!
Hugsa að flensan hafi stungið sér niður á heimilinu. E vaknaði með 38.5°hita í morgun. Heppilegt að hún veikist á föstudegi, þá eru aðeins færri dagar sem þarf að plana í sb. við vinnuna.
Þegar kom í ljós að hún væri veik, var það fyrsta sem spurði: Fæ ég þá Svala? Frábært að geta glatt barnið sitt með einum Svala. Sýnir vel hve sjaldan Svali er á boðstólnum hér á bæ.

Á leiðinni heim kom ég við í Hagkaup til þess einmitt að kaupa Svala. Sá þá í mjólkurkælinum eldgamla uppskriftabæklinga frá Osta og Smjörsölunni. Hugsanlega hefur e-r verið að taka til og skellt þessu fram. Var svo kræf að ég tók allan bunkann (það var samt til annar eins). Náði mér í 51 uppskriftarbækling.... hóst...
Ég er aðeins búin að glugga í þessa fyrstu. Hér eru nokkur dæmi:

Nr. 1: Ostapinnar: Síðdegisboð og önnur smáboð eru næsta algengir viðburðir hér á landi. Ostapinnar njóta sívaxandi vinsælda sem veizlukostur.... Einhleypir karlar og konur geta veitt ostapinna jafnvel þó að aðgangur að eldhúsi sé ekki fyrir hendi.


Nr. 3: SKólanesti: ... Nestið þarf að vera í þægilegum og góðum umbúðum, snyrtilegt og lystugt. Bezt er að nota lítinn kassa sem kemst auðveldlega í skólatöskuna, og leggja smjörpappír milli brauðsneiðanna. Nett hitaflaska heldur kakóinu heitu og mjólkinni kaldri.

Nr. 4: Fiskréttir með osti: Í fáum löndum eiga húsmæður eins greiðan aðgang að ferskum fiski daglega eins og hér hjá okkur.

Ef einhver veit hvaða ár þessir fyrstu bæklingar komu út látið mig vita. Sá síðasti nr.51 kom út 1986 er úrval úr eldri bæklingum.
Giska á að þessir fyrstu séu frá 1970 eða þar um kring. Myndirnar eru kostulegar.

Ég er ekkert endilega að fara að elda upp úr öllum þessum bæklingum heldur finnst mér skemmtilegt að skoða þetta.

Býst við að helgin fari í það að pakka :-) , hjúkra og fara í World Class. Horfa á Idolið, hekla, og eitthvað fleira.

Kveðja, Húsmóðirin.

þriðjudagur, mars 07, 2006

Aðdáendahópur

Mikið er ég glöð að sjá að það að 6 kíkja á bloggið. Ég sem bjóst bara við tveimur. Takk takk, ég held þá áfram.

Vinsælasta spurniningin sem ég er spurð að í dag er: Ertu búin að selja?
Og svarið er NEI. Við reddum þessu þó svo að salan taki lengri tíma en við bjuggumst við. Ein var svo góð að spyrja mig hvort ég gæti ekki athugað hvort kaupin á húsinu gætu gengið til baka! DÖH.... á ég að hringja 2 vikum fyrir afhendingu og segjast vera hætt við? Og BTW borgið mér allar miljónirnar sem ég er búin að borga ykkur!

Við erum mjög spennt að fara að flytja í húsið. Það verður æðislegt að setja krakkana í sitthvort herbergið, eiginmaðurinn fær dótaherbergið sitt, já og garðurinn... júbbíí. Við erum meira að segja búin að segja já við að ættleiða Óla Palla, einstaklega ljúfan kött sem býr í húsinu okkar.

Ég er búin að pakka öllum bókunum (10 kassar) og 3 til viðbótar. Nú verðum við að láta hendur standa fram úr ermum um helgina. Ótrúlegt allt þetta dót sem maður sankar að sér.

Bara bjartir tímar framundan :-)

Ungrú bjartsýni 2006