Ja, hérna: Grikkir Evrópumeistarar í knattspyrnu.
Ég er nú hálf fegin að þessi keppni er búin. Ég er búin að reikna lauslega út að ég horfði á u.þ.b. 25 af 31 leik. Ekki voru þetta allt 90 því af skiljanlegum ástæðum gat ég stundum bara horft á leikina með öðru auganu og seinni leikir dagsins voru oft bara seinni hálfleikir (eftir háttatíma). ÓMG... ég ætla ekki að reikna út mínúturnar... en þetta var mjög skemmtilegt!
Nú tek ég smá hvíld í íþróttaáhorfi áður en ÓL. byrjar. Júhú mér finnst svo skemmtilegt að fylgjast með Ólympíuleikunum.
Fór á djammið í gær.
Komst að því að ég hitti ekki fólk á mínum aldri á pöbbarölti, heldur í Bónus og Hagkaup og já og kannski á barnalæknavaktinni. En það var mjög gaman að fara út og við stelpurnar skemmtum okkur konunglega.
Kær kveðja, EM-aðdáandi nr.1