Heppni!
Ég er búin að vera alveg gríðarlega heppin undanfarið.
Hef unnið hvorki meira né minna en: 25% afslátt á Lækjarbrekkur, 2 fyrir 1 á vídeóleigu sem ég hef ekki hugmynd hvort er í Keflavík eða Reykjavík, frí litun og plokkun EF ég fer í vax. Þessa stórgóðu vinninga hef ég unnið á Núinu.
Ég fékk reyndar frábæran vinning á Bylgjunni um daginn. 150.000 krónur úttekt í parketverslun. Kemur sér mjög vel því planið var að parketleggja í kjallaranum á næstu 10 árum. Nú sé ég fram á að fataherbergið og dótaherbergi eiginmannsins verði parketlagt fyrir jól.
Ég er margbúin að sanna það að maður vinnur ekki nema taka þátt :-)
Nú væri frábært að vinna í Lottóinu, sem ég tek reyndar mjög sjaldan þátt í. Við erum með 2 raðir í áskrift það er allt of sumt.