Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

þriðjudagur, febrúar 21, 2006

Kvitta takk..

Næstu vikuna ætla ég að gera könnun á því hverjir (eða kannski bara hvort) lesa bloggið mitt.
Vinsamlegast kvittið á síðuna.
Ég er spennt að sjá hvort fleiri en systir mín og mágkona lesa bullið.

þriðjudagur, febrúar 14, 2006

Hlaupi hlaup :-)

Fór út að hlaupa í gær :) Þokkalega ánægð með mig því ég fann það að ég hef engu gleymt. Hef bara verið að hlaupa á bretti síðan í haust. Fór þessa sömu leið um páskaleytið í fyrra. Þá var ég að hefja hlaupaferilinn... hóst.. hóst... Viðurkenni hér að ég var nær dauða en lífi eftir fyrstu brekkuna (eiginlega hæð). Fann blóðbragð í munninum og hjartað slá í höfðinu.
Í gær fór ég þessa leið eins og ekkert væri.

Ekki skemmdi fyrir að eiginmaðurinn þekkir spúsu sína vel og keypti handa mér I-pod nano í útlöndum. Var búin að búa til 1 hlaupalagalista. Ef einhver er með ábendingar um góð æfingalög vinsamlegast látið mig vita því ég er svo lengi að finna lög til þess að hlusta á.
Nú vantar mig bara armband svo ég geti spókað mig með þetta í WC.
Bara svöl!!!

Mont kveðjur frá mér.

mánudagur, febrúar 06, 2006

Áfram SN :-)

Þetta lag fær mitt atkvæði laugardaginn 18.febrúar. Ekki spurning!!
Er ekki tími til komin að senda eitthvað svalt lag???

Fyrir þann sem þekkir ekki Sylvíu Nótt þá er þetta ekki sérstaklega gáfulegur texti.


Hey þú, ógisslega töff, ég er að tala við þig.
Ég er Silvía Night
shining in the light,
ég veit þú þráir mig.

Born in Reykjavík, hæfileikarík,
ekkert landsbyggðar frík.
Ég veit ég vinn fokkings úrslitin,
öll hin lögin hafa tapað.

Til hamingju Ísland, með að ég fæddist hér.
Ég Silvía Nótt og þið haldið með mér.
Eurovision nation fær sko flog er ég kem.
Ég er fædd til að vinn?idda, tremma í hel.

Töff, töff, töff

Mitt lag ógisslega töff,
ekkert næntís ógeð.
Það er töff ókei það er ekkert gay,
ég er komin hér to stay.

Hinar tíkurnar eru bólugrafnar,
en ég er hrein mey.
Þið elskið mig, þið dýrkið mig,
en samt eitthvað svo glatað.

Til hamingju Ísland, með að ég fæddist hér.
Ég Silvía Nótt og þið haldið með mér.
Júróvísjon neisjon fær sko flog er ég kem.
Ég er fædd til að vinn?idda, tremma í hel.

Til hamingju Ísland, með að ég fæddist hér.
Ég Silvía Nótt og þið haldið með mér.
Eurovision nation ég fer fyrir þig.
Rúst?issu dæmi, fæ tremmamörg stig.