Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

þriðjudagur, nóvember 22, 2005

Robbie..

Reyndi í marga klukkutíma í gær að fá miða á Robbie Williams tónleika í Köben næsta sumar.
Hann verður með tvenna tónleika 6. og 7.júlí í Parken (been there).
Því miður hrundi miðasölukerfið og margir Danir hundfúlir. Ég fór í röð á netinu og eftir 5 klukkutíma datt mér í hug að kíkja á billetlugen og þá kom fram að það var uppselt. Ég skráði mig samt á biðlista en það er jafn líklegt að ég fái miða eins og að vinna í lottói.
Það var svo hrikalega gaman á U2 tónleikunum að nú langar mig aftur á svona stórtónleika. RW er örugglega sjúklegur á tónleikum. Las í Mogganum í morgun að það hefði selst upp á 3 tímum á tónleikana hans á næsta ári. Oh well. Kannski koma einhverjir frægir hingað. RW kemur pottþétt ekki því það fauk svo illilega í hann þegar kom hingað fyrir nokkrum árum að hann hefur eflaust ekki áhuga á að koma aftur.

Ég náði í miða á Frostrósir í Laugardalshöll 10.des.

Bæjó... tónleikasjúklingurinn :-)

fimmtudagur, nóvember 10, 2005

Monti monti

Ég er svo montin að ég varð að monta mig hér:
Ég er búin með Mogga gátuna (n.b. úr sunnudags blaðinu). Ég er búin að vera að leysa hana í meira en eitt ár. Ég hef oftast átt eftir svona 3-4 orð, en aldrei tekist að klára hana sjálf. Er ég nokkuð algjör Nörri???

Hér er eitt snilldarorð: "lið" sagði Filipseyingur í boðun. Svar: Herkvaðning... Oh, frábært.
Fyrir áhugasama er hér heimasíða krossgátunnar.

Vetrarfríið var yndislegt. Prógrammið mitt gekk alveg upp. Út að borða, leikfimi og dúllerí. Öll familían fór svo í sumarbústað fimmtud-sunnudags. Frábær afslöppun.

Dagurinn í dag var ferlegur í skólanum. Margir uppstökkir, pirraðir og ég veit ekki hvað. Sumir gengu svo langt að þeir fóru að tala um fjöldauppsagnir.
Ég sver að þetta minnti mig á nýju VÍS auglýsinguna þar sem allt fer úrskeiðis. Það hlýtur að vera von á lægð yfir landið. Vonandi verður morgundagurinn skárri.

Bæjó, kennslukonan