Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

sunnudagur, maí 22, 2005

Aftur nýtt met

Jæja.... þetta fer að verða eins og ótrúleg lygasaga.
Ég kláraði 3. ofurpencilín skammt á fimmtudaginn og það er eins og ég bjóst við, var farin að finna fyrir mjög svo kunnuglegum einkennum í gær. Þetta er nú hætt að verða fyndið. FJÓRÐA helv.... hálsbólgan í röð!!!! Ég nenni þessi ekki. Ég er nú ekkert sérlega veik með þessu en er kannski ekki alveg í toppformi.
Ég fór til HNE læknis í vikunni og ég er komin á "takahálskirtillista" vei.... Það á að skera hann úr og brenna fyrir með leiser. Get þá sagt að ég sé að fara í leiseraðgerð. Doldið svalt.
Haldiði svo ekki að ungfrú bóla sem hleypur sé mætt á svæðið!!!! Það kom að því. Þetta er búið að vera að ganga í leikskólanum svo við erum búin að vera að fylgjast með krökkunum. Í dag fór ekkert á milli mála að E væri komin með hana. Það var akkúrat 5 mín áður en við ætluðum að leggja af stað í skírnarveislu. Uppgötvaði 2 bak við eyrað þegar ég var að greiða henni. Hún fékk samt að fara með í kirkjuna og var svo skutlað til ömmu. Við höldum að B sé líka að fá þetta því hann er örugglega kominn með 2 stk í andlitið. Það kemur þá pottþétt í ljós á morgun.

Ég ætlaði að hafa þetta svaka Júróvisjón innlegg. Þetta var nú meiri trommukeppnin. Við héldum með norska laginu og svo var það danska auðvitað meiriháttar líka :-)

Fimmtudagskvöldið 30.júní 2005 verð ég stödd í Egilshöllinni að syngja með Duran Duran (Essý nú geturðu líklega giskað á hver afmælisgjöfin þín verður).
Þetta verður fín upphitun fyrir U2 tónleikana (fyrir þá sem ekki vita þá er ég semsagt að fara á U2 líka í sumar).

Hálsbólgu og Hlaupabólukveðjur,

miðvikudagur, maí 11, 2005

Nýtt met

Ég held svei mér að ég sé að slá nýtt met. Hálsbólga #3 er mætt á svæðið. Get svo svarið það. Ég kláraði lyfjaskammtinn minn á föstudaginn og fann fyrir einkennunum á sunnudag. 3 ofurpencilín skammturinn kominn í lyfjaskápinn. Nú er ég búin að panta tíma hjá sérfræðingi í næstu viku. Ætli það þurfi ekki að rífa þennan þrjóska hálskirtil úr mér. Hugsið ykkur.. búið að skera hann einu sinni í burtu og hefur svo tekið sér 14 ár í að vaxa aftur. Veiiii eða þannig sko. Fór nefninlega í hálskirtlatöku fyrir 15 árum (finnst samt eins og það hafi verið í gær) og það er ekki skemmtileg aðgerð, en ég læt mig hafa það.

Við hjónakornin fórum á djammið á laugardagskvöldið. Fengum næturpössun (takk elsku besta systir mín), fórum út að borða, bjórkvöld og svo síðast en ekki síst: Ball með Sálinni. www.salin.is
Það er búinn að vera draumurinn í mörg ár að komast á Sálarball. Það var alveg ferlega gaman. Verst hvað var troðið. Kom heim með marblett á augabrúninni, á hægri ristinni og nokkur sár á fótunum. Slapp alveg við brunagöt.
Fyndið hvað fólki finnst það merkilegt að við förum tvö saman út að skemmta okkur. Við hljómum eins og risaeðlur. Útdauðar lífverur. Mæli með þessu.


P.S. Elska þessa setningu: Þú fullkomnar mig....... Elska samt meira þessa setningu með U2: Sometimes you can't make it on our own..... Varð að koma því að U2 er auðvitað í fyrsta sæti þó svo að ég hafi farið á Sálarball.
Samkvæmt talningu systur minnar eru ekki nema 81 dagur í tónleikana.

þriðjudagur, maí 03, 2005

Gleymdi einu:

Steingleymdi aðal montinu: Ég er búin með sunnudagsmorgunblaðskrossgátuna í fyrsta skipti.
Hef oft átt nokkur orð eftir en nú er ég búin. ÓMG hvað ég er montin. Síðasta orðið sem ég gat var: Grunnur fjörður þar er ætið er alvarleg kreppa. Svar: Krísuvík of course.

Enn meiri mont kveðjur,

Rídalín

Ég er búin að vera svo ferlega dugleg í dag að það mætti halda að ég hefði komist í rídalín töflur.. hehe aðþrengdar eiginkonur brandari. Ég fór yfir heilt fjall af bókum í dag, fór á einn fund, gerði 2 einstaklingsáætlanir, undirbjó morgundaginn og ýmislegt fleira. Já, og pantaði vorferð fyrir árganginn.
Nú er klukkan 22.48 og ég hef 12 mín áður en ég ætla að vera komin í bólið. Stefni á WC í fyrramálið.

Monti monti.
Adios, ofur eiginkonan...

P.S.