Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

sunnudagur, ágúst 29, 2004

Danmörk vann!

Ég horfði á Danmörk-Kórea áðan spila úrslitaleik í handbolta kvenna á Ól. Þetta er einn mest spennandi leikur sem ég hef horft á lengi. 2 framlengingar og svo vítakeppni. BTW þetta er fyrsta vítakeppni sem ég sé í handbolta.
Frábær skemmtun!!! Get ekki annað en verið stolt af "mínu" liði :-)

Í dag er síðasti dagurinn minn sem þrítug. Í tilefni þess er ég með smá kaffiboð á eftir.
Ég er búin að fá eina svakalega fína gjöf sem er núna í hleðslu. Nýjan síma með myndavél og alles.

Fyrsta vikan í kennslu er búin að vera fljót að líða enda mikið að gera. Nú er allt að komast á rétt ról þannig að ég vona að næsta vika verði ekki svona erilsöm. Svo er orðið sem enginn þorir að segja þessa dagana: Verkfall...... kemur í ljós 20.sept.

Handboltakveðjur..



laugardagur, ágúst 21, 2004

Gleymdi einu....

Það er ekki langt síðan Essý var svo góð að setja teljara inn hjá mér. Síðan þá eru yfir 100 heimsóknir á síðuna. N.B. þetta er ekki ég sjálf.
Mér þætti gaman að vita hverjir/hvort einhverjir eru að lesa bullið í mér því það eru ekki nema 2 sem vita af henni. Sverrir og Essý (reynar er linkur af síðunni hennar yfir á mína).

Glöggir lesendur (ef einhverjir) hafa e.t.v. tekið eftir gestabókinni og nýjum linkum :-)

Kveðja, Ofurbloggarinn

Laugardagur

Í dag ætlaði ég að hlaupa 10 km í Reykjavíkurmaraþoninu. Ég var svo ákveðin í þessu í vor en kom mér aldrei í hlaupagírinn. Nú set ég mér hér með takmark: Verð með að ári!
Tek þátt í anda þetta skiptið.

Ég hlakka til að fara á menningarnótt því ég hef ekki farið í nokkur ár. Við ætlum að athuga tónleikana og auðvitað horfa á flugeldasýninguna. Annars ekkert ákveðið. Færumst bara með straumnum.

Hlaupakveðja,




fimmtudagur, ágúst 19, 2004

Chiao Italia...

Við unnum, við unnuð ólei ólei ólei...
Vá hvað þetta var frábær leikur :-)
Þarf ekki að segja meira.

Handbolta og fótboltakveðja,
íþróttasjúklingurinn


þriðjudagur, ágúst 17, 2004

Þriðjudagur

Nú á ég börn sem eru í leikskóla... liggaliggalái! Fyrsta heimsóknin gekk eins og í sögu og þau vildu ekki fara heim. Þessi aðlögun á eftir að taka vikuna og á meðan eru dagarnir algjört púsluspil. Mamma tekur krakkana eftir hádegi á morgun svo við getum bæði verið í vinnunni. Þetta reddast.
Núna í vikunni þurfum við að fara að gera alvöru úr því að leita af öðrum bíl. Þetta á að vera lítill, sparneytinn og góður bíll fyrir lítinn pening. Þarf ekki að fara út fyrir bæjarmörkin. Verður mest notaður á leiðinni: Grafarvogur - Mjódd - Háskólinn - Mjódd - Grafarvogur.

Annars var bara ágætt að byrja í gær. Alltaf smá stemning að hefja skólastarf. Núna er ég orðin stigsstjóri (hljómar þetta ekki vel?) og þarf að stjórna fundum og koma skilaboðum áleiðis til kennara á miðstigi. Doldið cool! (Kannski er þetta ekki alveg nógu flott orðalag fyrir kennara....).

Kveðja, kennslukonan :-)

föstudagur, ágúst 13, 2004

Síðasti í sumarfríi

Ja, hérna síðasti dagur sumarfrísins er runninn upp. Það er örlítið kaldara í dag en hefur verið. Ég fann það í morgun þegar ég fór í WC því þá var svöl gola en alla vikuna er búin að vera heit.
Ef hægt væri að ábyrgjast svona veður eins og búið er að vera væru sumrin á Íslandi enn betri.

Jarðaförin var í gær. Athöfnin var mjög falleg og presturinn yndislegur (Bjarni í Laugarnesi). Ég var kistuberi í fyrsta skipti.

Jæja, ég ætla í bæinn með krakkana og gefa öndunum. Tökum svo strætó heim.

Bless í bili.


þriðjudagur, ágúst 10, 2004

Já ég náði...

að kaupa 3 pakka af Seríósi.
Það var eins og 17.júní í Hagkaup. Þvílíkur hamagangur!

* Hvað sagði ljóskan þegar hún sá Seríósið?
... kleinuhringjafræ.
Mér finnst þessi alltaf standa fyrir sínu.


Sól, sól skín á mig!!!

Lífið er yndislegt.....
I'ts a perfect day......
Sól, sól skín á mig.....

Þetta eru allt línur úr misþekktum söngtextum sem mér fundust hæfa fyrir daginn í dag :-)
Úti er sól og yfir 20 gráður hiti og klukkan er bara 9. Það er frábært að búa á Íslandi þegar koma svona dagar. Sem betur fer byrja ég ekki að vinna fyrr en á mánudaginn og þess vegna ætla ég heldur betur að nýta tímann til útiveru.

Ætla að skella mér út í Hagkaup á 99 kr daginn. Aldrei þessu vant eru tilboðin eftirsóknarverð. Ég ætla að kaupa Brazza, Cheerios (aðeins 3 pakkar á mann), geisladisk og litabók.
Ætli ég þurfi að vera mætt kl.10 þegar opnar???

Sólarkveðjur,


laugardagur, ágúst 07, 2004

Nýtt

Eins og glöggir lesendur (sem eru ekki margir því ég hef eiginlega engum sagt frá síðunni) hafa tekið eftir er kominn teljari á síðuna og eins er kominn linkur yfir á aðra síðu. Ég ætla svo að reyna að skella inn fleiri linkum.

Dagskrá dagsins í dag er óakveðin. Spurning um að kíkja í bæinn á gay pride. Verst að við tökum svo mikið pláss með kerruna. Stundum virkar hún eins og plógur, allir sem við mætum víkja og við komust áfram. Hef einu sinni farið á gay pride og það var mjög skemmtilegt og mikil stemmning. Áfram samkynhneigðir!!!



föstudagur, ágúst 06, 2004

Niðurtalningin

er byrjuð.
Sumarfríið mitt er að verða búið. Ég trúi því varla ennþá að núna eru bara 10 dagar eftir. Hvert fór fríið mitt?
Þegar ég rifja lauslega upp hvað ég er búin að gera er listinn nokkuð langur. Bara núna síðast(mánud-miðvikudag) fór ég í veiðiferð með pabba og litla bró(hann getur samt varla talist lítill). Pabbi sendi mér myndir úr ferðinni í gær: Pabbi með einn 5 punda hlunk, Stebbi með einn 4 punda og að rifna úr monti, ég standandi í allt of stórum vöðlum með stöngina mína í hendinni. Ferlegt svekkelsi, ég veiddi ekki eina bröndu. Missti að vísu einn ferlega stóran (allaveganna 5 pund). Við stunduðum rannsóknarstörf þarna til þess að vera vel undirbúin fyrir næsta sumar. Litli sjór er fyrir þá sem kunna ekki að veiða því þar getur maður verið nokkuð viss um að fá kannski 1 stk (ég missti minn einmitt þar), Hraunvötnin eru vötnin sem maður á að veiða í.
Bókuðum kofann að sama tíma að ári. Þrátt fyrir afleysið var mjög gaman og fínt að komast aðeins í burtu.