Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

föstudagur, september 28, 2007

Toyota skójóta

Mitt litla dönskuhjarta tekur aukslög af móðgun þegar ég heyri auglýsingu á borð við:
Vi viser biler i alle stæder!
Ég get bara ekki með nokkru móti skilið hvað er verið að meina. Ætluðu þeir að segja stæði? eða stærðum?
Spurning um að senda póst a Toyota og biðja um þýðingu.

Farvel

Margt og mikið

Hellú!

Er alltaf að væflast með þetta blogg on/off? Hef ég eitthvað merkilegt að segja? Tja..
Best að koma einni færslu inn.

Á dagatalinu mínu í vinnunni stóð við 27.sept: Haustmánuður hefst. Passar mjög vel við veðrið í dag. Rok og rigning og rok og rigning :-/
Ég er alltaf að bíða eftir þokkalegu helgarveðri því ég á eftir að græja garðinn fyrir veturinn - haustlaukarnir blómstra varla í poka í bílskúrnum.

Ég ákvað að skella mér í Boot camp svona til tilbreytingar. Ég er að klára viku nr.3 og þá eru bara 9 eftir. Í stuttu máli sagt er þetta svakalegasta líkamsrækt sem ég hef verið í. Þarna er sko tekið á því!
Ég var búin að heyra alls konar hryllingssögur af BC en ég hef ekki ennþá séð fólk æla, falla í yfirlið eða deyja þarna inni.
Ég fór meira að segja á 2 tíma útiæfingu síðustu helgi. Mætti galvösk niður í Elliðárdalinn rétt fyrir kl.9. Fékk vægt sjokk þegar ég sá alla bílana og fólk streymdi að. Giska á að það hafi verið 70-80 manns á þessari æfingu. Það sem ég lét hafa mig út í: Ætla ekki að telja allt upp en toppurinn var að skríða í háu grasi eins og hermenn gera. Mig vantaði bara kamóflas gallann og græna andlitsmálningu, þá hefði þetta verið enn betra. Þegar mér fannst ég vera búin að taka vel á því leit ég á klukkuna og ætlaði varla að trúa mínum eigin augum: 35 mínútur búnar!!! Það hvarflaði að mér að ég myndi sennilega ekki halda út 85 mín í viðbót.
En viti menn - auðvitað gerði ég það og var svakalega stolt af sjálfri mér.
Getið alveg bókað það að ég mæti aftur á 2 tíma útiæfingu eftir viku.

Annars gengur lífið sinn vanagang, vikan hjá mér er mánudagur og svo er allt í einu kominn föstudagur.

Adios :-)