Einhvern veginn hef ég gleymt að blogga, gleymt lykilorðinu mínu og verið í bloggóstuði. EN eftir að ég missti af kaffhúsaferð vegna bloggleti ákvað ég að drífa mig og henda inn svosem eins og einni færslu.
Ég er heima með lítinn lasarus sem er á batavegi. Ég ákvað að vera góða mamman og fara í playstation leik með syninum og kynna mér það sem hann er að gera í tölvunni. Mér fannst mér ganga mjög vel og náði að hoppa, skjóta og safna mér inn stigum.
B: "Mamma, þú ert verri en barn í þessum leik". Hætti fljótlega eftir þetta, en komst að því að sonurinn er snillingur í þessum leik (Starwars lego).
Mér er að takast að koma hreyfingunni inn í dagskrá dagsins. Minn tími er kl.6.00 á morgnana. Kem heim aftur um kl.7, næ að fara í sturtu, borða og lesa Moggann áður en familían er vakin. Mér finnst ég reyndar algjör hetja að geta vaknað kl.5.40 og farið í ræktina. Stundum þarf 10 fíla til þess að toga mig fram úr en um leið og höfuðið hefur lyfst 1 cm frá koddanum er eftirleikurinn auðveldur :-)
Síðan síðast er ég búin að fá nýjan I-pod og hann er BLEIKUR.