Nobody....
Ég er búin að komast að því að ég er "nobody". Eða nobody is perfect and I'm nobody.... þetta var bara smá útúrdúr.
Ég skráði nafn mitt fyrir 6 vikum á spjald á sýningu þar sem ég óskaði eftir því að fá hringingu um heimavörn Securitas. Enginn búinn að hringja. Hitt er svo annað mál að ég er búin að kynna mér málið og ætla alls ekki að fá mér þessa heimavörn, en það er önnur saga.
Á sömu sýningu skráði ég nafn mitt á spald þar sem ég sagðist hafa áhuga á að verða blóðgjafi. Blóðbankakonana sagði að það yrði örugglega haft samband við mig því það vantar svo marga blóðgjafa. Enginn búinn að hringja. En ég er alveg ákveðin í því að fara í blóðbankann við tækifæri því mér þykir svo gaman að láta pína mig með sprautum. Nei, án gríns þá lít ég á það sem samfélagslega skyldu mínu að gefa blóð ef ég get það.
Semsagt: Ég er hætt að segja nafnið mitt í pott og bíða eftir því að vinna eitthvað eða að það verði haft samband við mig. Ég skipti semsagt engu máli.
Einu vinir mínir núna eru frambjóðendurnir í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins, þeir hringja í mig og vilja fá atkvæðið mitt. Þar skipti ég máli.
Þetta er nú meira bullið í mér.... kannski er þetta mánudagsletin á mjög háu stigi sem kemur svona út?????
P.S. Ég er búin að kaupa mér nýja hlaupaskó. Hálfu númeri stærri en þeir gömlu og það er sko allt annað að hlaupa í þeim. Engar blöðrur!!!!